Fá ekki linsur til að víkka sjónsvið barna án augasteina 20. mars 2006 18:57
Ríkið tímir ekki örfáum milljónum á ári, sem gætu skipt sköpum fyrir börn sem skortir augasteina. Hálft stöðugildi og þrjár milljónir króna í stofnkostnað er allt sem þarf til að frelsa um þrjátíu augasteinslausa einstaklinga hér á landi. Íslenska ríkið hefur ekki treyst sér til þess að veita þeim sambærilega þjónustu við þá, sem er annarsstaðar á Norðurlöndunum.Í fréttaskýringaþættinum Kompási í gær var rifjuð upp aðgerð sem þriggja mánaða blindur drengur gekkst undir fyrir nærri níu árum en gallaður augasteinar hans voru þá fjarlægðir. Áhorfendur sáu þegar hann viku síðar fékk sérsmíðuð gleraugu en með þeim gat hann séð. Drengurinn er í dag orðinn fluglæs og gengur að flestu leyti vel í skólanum.Líf hans er þó háð nokkrum takmörkunum. Gleraugun, sem gegna hlutverki augasteina, takmarka sjónsvið hans það mikið að hann getur ekki tekið fullan þátt í útileikjum barnanna, hann hjólar ekki, á erfitt með sund og stundar ekki fótbolta með honum krökkunum. Á hinum Norðurlöndunum býðst börnum í hans stöðu að fá linsur en Kristín Gunnarsdóttir sjóntækjafræðingur á Sjónstöð Íslands hvetur til þess að slík þjónusta verði einnig boðin hérlendis. Hún hafi séð hvernig linsur frelsuðu börnin.Alls eru 33 einstaklingar skráðir hjá Sjónstöð Íslands sem gætu hugsanlega haft hag af því að fá slíkar linsur í stað gleraugna. Þar af eru ellefu börn. Fjárskortur hamlar því að unnt sé að bæta líf þeirra með þessum hætti.Kristín Gunnarsdóttir sjóntækjafræðingur segir það ergilegt að liðin séu tuttugu ár frá því að önnur börn á Norðurlöndunum fóru að fá linsur, á meðan íslenskum börnum bjóðist enn aðeins þykk gleraugu, sem takmarki hreyfigetu þeirra.
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fannst heill á húfi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Erlent Fleiri fréttir Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn „Það er ekkert verið að innleiða einhver svakaleg próf í Kópavoginum“ Sjá meira