Mladic að líkindum handtekinn 21. febrúar 2006 19:05
Óstaðfestar fregnir herma að Ratko Mladic, æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, hafi verið handtekinn í Serbíu í dag. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug, þar á meðal fjöldamorðin í Srebrenica þar sem að minnsta kosti átta þúsund manns voru myrtir. Fréttir af handtöku Ratko Mladic eru enn mjög óljósar en serbneska Tanjúg-fréttastofan greindi frá þessu síðdegis. Þar kom fram að Mladic hefði verið tekinn fastur í Belgrað, höfuðborg Serbíu, og verið væri að flytja hann til Haag í Hollandi þar sem stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna mun rétta yfir honum. Nú laust fyrir fréttir þvertók hins vegar talsmaður serbnesku ríkisstjórnarinnar, að Mladic hefði verið handtekinn og að því er AP-fréttastofan hermir er í þessum töluðu orðum verið að semja við Mladic um að gefa sig fram. Ásamt Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtoga Bosníu-Serba, er Mladic sá maður sem stríðsglæpadómstóllinn vill helst hafa hendur í hárinu á. Hann var æðsti yfirmaður herafla Bosníu-Serba í stríðinu á Balkanskaga á síðasta áratug, bæði í Bosníu og síðar í Kosovo. Mladic er sagður hafa stýrt hinum illræmdu sporðdrekasveitum sem í júlí árið 1995 myrtu að minnsta kosti átta þúsund og eitt hundrað manns í bænum Srebrenica, sem er versta fjöldamorð í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Mladic og Karadzic hafa farið huldu höfði síðasta áratuginn og eru stjórnvöld í Serbíu eða serbneska hluta Bosníu grunuð um að halda yfir þeim hlífiskildi en þar eru þeir álitnir þjóðhetjur. Serbnesk stjórnvöld eru hins vegar sögð hafa tekið sig á í þessum efnum í þeirri von að það greiði fyrir inngöngu landsins í Evrópusambandið.
Erlent Fréttir Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Sjá meira