Nauðgaði fjórtán ára stúlku 12. desember 2006 18:44
Rúmlega tvítugur karlmaður, Edward Apeadu Koranteng, var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku. Nauðgunin átti sér stað á síðasta ári en fyrir hálfum mánuði var maðurinn kærður fyrir að nauðga þrettán ára stúlku. Móðir stúlkunnar kærði nauðgunina í nóvember í fyrra en hún átti sér stað í september á síðasta ári. Stúlkan var ásamt tveimur vinkonum sínum á Hlemmi þegar þær hittu manninn. Hann bauð þeim heim til sín til að hlusta á tónlist en hann er í rapphljómsveit og gengur undir nafninu Eddie Boy. Þegar heim til mannsins var komið lokaði maðurinn sig inni í herbergi með stúlkunni og nauðgaði henni. Stúlkan leitaði til Neyðarmóttöku fórnarlamba kynferðisofbeldis fjórum vikum eftir nauðgunina en hún þorði fyrst um sinn ekki að segja móður sinni frá atvikinu. Dómurinn taldi framburð stúlkunnar og vinkvenna hennar trúverðugan og augljóst að atburðurinn hefði sett mark sitt á þær. Sálfræðingur í Barnahúsi sem ræddi við stúlkuna greindi fjölmörg vandamál sem þekkt eru meðal barna sem sætt hafa kynferðislegu ofbeldi. Stúlkan hefur eftir nauðgunina haft lágt sjálfsmat og hefur átt erfitt með að einbeita sér og gengið illa í skóla. Maðurinn neitaði fyrir dómi að hafa haft samræði við stúlkuna en framburður hans þótti misvísandi. Dómurinn telur brot mannsins ófyrirleitið en hann hafi bæði beitt aldurs- og aflsmun þegar hann nauðgaði stúlkunni. Maðurinn var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í þriggja ára fangelsi og jafnframt til að greiða stúlkunni eina milljón króna í skaðabætur. Í lok nóvember var maðurinn aftur kærður til lögreglunnar í Reykjavík fyrir að nauðga þrettán ára stúlku. Maðurinn gengur laus og þarf ekki að hefja afplánun fyrr en eftir að hann hefur tekið ákvörðun um hvort hann ætli að áfrýja dómnum.
Mest lesið Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Fleiri fréttir Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Sjá meira