Vilja endurskoðun á samgönguáætlun 25. mars 2006 10:30 MYND/E.Ól
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vill að Alþingi og samgönguyfirvöld endurskoði nú þegar samgönguáætlun og veiti meira fé til verkefna á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórinn segir að binda verði enda á kílómetra langar raðir sem myndist á álagstímum á aðalæðum bæjarins. Athygli vekur að allir fulltrúar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, bæði samfylkingarfólk og sjálfstæðisfólk, samþykktu á fundi sínum á miðvikudag að hvetja stjórnvöld til að endurskoða samgönguáætlun með það að markmiði að auka fé til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu og greiða þannig fyrir umferð. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að það sjái allir sem fari um höfuðborgarsvæðið hver staðan sé í umferðarmálaum. Það dugi ekki lengur að 20 prósent af heildarframlögum til samgöngumála fari verkefni á höfuðborgarsvæðinu þar sem 80 prósent umferðarinnar sé.Aðspurður hver séu mikilvægustu verkefnin segir Lúðvík að það séu tengibrautirnar milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Hafnfirðingar hafi upplifap sig í gíslingu á suðurhluta svæðisins þar sem umferðarflæðið gegnum Garðabæ, Kópavog og til Reykjavíkur hafi verið mjög erfitt. Nú sé loksins verið að fara í tvöföldun á Reykjanesbrautinni í Garðabæ en stíflur séu á gamla Hafnarfjarðarveginum þar bílalestir séu kílómetra langar á mestu annatímum. Þetta verði ekki leyst nema með aðgerðum. Aðspurður segir Lúðvík samstöðu meðal stjórnenda sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um að krefjast meira fjármagns til samgangna. Þá segir hann að menn þekki umræðuna um Sundabraut og Reykjanesbratu. Það séu verkefni sem séu komin af stað en meira þurfi til.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira