Erlent

Krefjast úrbóta í málefnum innflytjenda

MYND/AP

Hundruð þúsunda tóku þátt í mótmælagöngum víða um Bandaríkin í gær og kröfðust úrbóta í málefnum innflytjenda. Mjög skiptar skoðanir eru um hvernig taka skal á þessu máli en talið er að á milli ellefu til þráttán milljónir ólöglegra innflytjenda búi í landinu. Í síðustu viku benti margt til að öldungadeild Bandaríkjaþings hefði náð samkomulagi um nýja tillögu um málefni innflytjenda en í þeirri tillögu hefðu ólöglegir innflytjendur fengið tækifæri til að gerast ríkisborgarar. Þessi tillaga var hins vegar ekki afgreidd og er nú óvíst hvað gerist í málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×