Erlent

Vill ekki verða forseti Frakklands

MYND/AP

Dominique du Villepin, forsætisráðherra Frakklands, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann hefði engan áhuga á að verða forseti landsins eins og haldið hefur verið fram. Þá sagðist hann ekki vera fallinn í ónáð hjá Jacques Chirac forseta landsins í kjölfar umdeildrar atvinnulöggjafar stjórnarinnar sem dregin var til baka vegna mikillar óánægju námsmanna og verkalýðsfélaga. Skoðanakannanir benda til þess að vegna deilunnar hafi vinsældir du Villepin meðal kjósenda hrunið og eigi hann nú litla sem enga möguleika í kosningunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×