Lagt á ráðin um að ræna syni Blairs 18. janúar 2006 13:15 Leo og Tony Blair. MYND/AP
Bresk lögregla hefur komið upp um ráðabrugg um að ræna Leo, yngsta syni Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands. Breska götublaðið Sun greindi frá þessu í morgun. Samkvæmt heimildum blaðsins þá ætluðu öfgafullir félagar í samtökunum Fathers 4 Justice, sem berjast fyrir auknum réttindum feðra, hafi ætlað að ræna Leo, fimm ára syni Blair, í stuttan tíma til þess að sýna forsætisráðherranum fram á hvernig það væri að fá ekki að hitta börn sín. Samtökin hafa hætt starfsemi um tíma vegna málsins og staðfesti talsmaður þeirra að lögreglan hefði yfirheyrt nokkra fyrrverandi félaga fyrir jól. Talsmenn forsætisráðherrans hafa ekki viljað svara spurningum fréttamanna vegna málsins og lögregla hefur ekki viljað staðfesta fréttina. Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir heimildarmönnum innan lögreglunnar að hún hafi vitað af ráðabrugginu en ekki talið að mennirnir hefðu bolmagn til að ráðast í svo flókna aðgerð. Félagar í samtökunum hafa áður komist í fréttirnar, meðal annars fyrir að klífa Buckingham-höll í búningi Leðurblökumannsins og kasta hveiti yfir Blair á breska þinginu. Auk Leo eiga Blair, og kona hans Cherie, tvo syni um tvítugt og sautján ára dóttur.
Erlent Fréttir Mest lesið Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Innlent Slapp óvænt við fangelsi og braut ítrekað á stjúpdóttur sinni Innlent Akademískir starfsmenn lýsa yfir vantrausti á rektor Innlent Vilja geta sett herlög á eyju norðan Íslands Erlent Á batavegi eftir alvarlega líkamsárás á Höfða Innlent Vaktin: Stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands Erlent Fékk afa sinn með sér á skólabekk Innlent Léttara yfir formanninum eftir þriggja tíma fund Innlent Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Erlent Hætta vinnslu umsókna innflytjenda frá 75 ríkjum Erlent Fleiri fréttir Hætta vinnslu umsókna innflytjenda frá 75 ríkjum Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Stuðningur við Grænland ómetanlegur og hvetur Íslendinga til að mæta Vilja geta sett herlög á eyju norðan Íslands Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni 32 látnir eftir að krani féll á lest í Taílandi Rannsaka ásakanir á hendur Iglesias Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Vaktin: Stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands Tveir látnir eftir árekstur strætisvagna Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Trump segir Nielsen í vondum málum Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Trump sýndi verkamanni puttann Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur „Við veljum Danmörku“ Að minnsta kosti þrjú þúsund látnir í Íran Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna Borgin ber enga ábyrgð í Gufunesbruna og stjórnarmaður í Truenorth segir tjónið óbætanlegt Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Kynnir sér möguleika varðandi Íran og leggur toll á vinaríki klerkastjórnarinnar Sjá meira