Niðurstaðna að vænta í vikunni 6. mars 2006 19:09
Íranar hafa aukið framleiðslu á eldflaugum sem geta borið kjarnaodda. Íransstjórn lofar að leggja meiri áherslu á auðgun úrans en áður, ákveði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að beita refsiaðgerðum gegn Íran. Fundur stjórnar Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar hófst í Vín í morgun. Nýverið hefur verið haft eftir stjórnarerindrekum að í viðræðum undanfarna daga hafi verið nefndur sá möguleiki að Írönum verði leyft að auðga úran í takmörkuðu magni, þrátt fyrir möguleikana á að slíkt verði misnotað til smíði kjarnavopna. Þetta markar tímamót í málinu því að Evrópu- og Bandaríkjamenn hafa undanfarin ár harðneitað því að Íranar fái nokkra heimild til auðgunar. Aðalsamningamaður Íransstjórnar sagði í gær að Íranar myndu ekki láta vestræn stórveldi vaða yfir sig og ef eitthvað væri myndu þeir leggja enn meira púður en áður í auðgun úrans ef ákveðið yrði að vísa málinu fyrir öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna. Hann segir kjarnorkuþróun vera Írönum nauðsynleg, auk þess að það sé sjálfsagður réttur þeirra og vilji þjóðarinnar að þróa kjarnorku. Rússar og Kínverjar fóru fram á það í byrjun febrúar að Írönum yrði gefinn frestur til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Nú er sá frestur liðinn, án þess að neitt hafi þokast í samningsátt. Skilaboðin frá stjórnvöldum í Íran hafa verið skýr og það kom berlega í ljós á fundi þeirra með fulltrúum stórvelda Evrópu fyrir helgina, þar sem samningamaður þeirra sagði það ekkert annað en yfirgang og frekju að ætla að vísa málinu fyrir öryggisráðið. Niðustaðna í málinu er að vænta á næstu dögum. Mohamaed ElBaradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, lét hafa eftir sér fyrr í dag að hann gerði sér vonir um að hægt yrði að semja um lausn deilunnar fyrir lok vikunnar.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira