Innlent

Bandaríkjamenn ætluðu að loka tveimur ratsjárstöðvum

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra telur sig ekki geta komið í veg fyrir flutning starfa á vegum Ratsjárstofnunar frá landsbyggðinni á Keflavíkurflugvöll. Ráðherrann vonast þó til að allar fjórar núverandi ratsjárstöðvar verði áfram starfræktar, þrátt fyrir brottför hersins.

Valgerður svaraði fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Frjálslyndaflokksins, sem lék forvitni á að vita hvað ráðherrann ætlaði að gera vegna uppsagna starfsmanna Ratsjárstofnunnar á Vestfjörðum, Norðausturlandi og Suðurlandi. Ráðherra sagði sjálfvirkni hafa aukist mikið í ratsjárstöðvum, sem reknar væru af Bandaríkjamönnum. Bandaríkjamenn hefðu ætlað sér að loka ratsjárstöðvunum á Bolafjalli og á Langanesi við brottför hersins í september. Nú ætli þjóðirnar og NATO að ræða framtíðarfyrirkomulag og fjármögnun þessara stöðva.

Utanríkisráðherra sagðist vona að niðurstaða þessarra viðræðna yrði að allar ratsjárstöðvarnar fjórar verði áfram í rekstri. En niðurstaða verður að liggja fyrir í þeim efnum fyrir 15. ágúst á næsta ári.

Kristinn H Gunnarsson, samflokksmaður ráðherrans, lagði áherslu á að Ratsjárstofnun væri íslensk stofnun. Hún væri á fjárlögum íslenska ríkisins og lyti valdi íslenskra ráðherra. Hann sagðist ekki telja það skynsama stefnu, sem bandarísk stjórnvöld hefðu tekið, að flytja störf frá Vestfjörður, Norðausturlandi og Suðausturlandi til Miðnesheiðar.

Fyrirspyrjandinn Sigurjón Þórðarson var ekki ánægður með svör ráðherra og minnti hana á, eins og Kristinn að um væri að ræða íslenska stofnun. Það þýði ekki fyrir ráðherrann að skýla sér á bakvið Bandaríkjamenn, þetta sé einfaldlega hennar ákvörðun og ekki líti út fyrir að ráðherrann ætli að breyta einu né neinu.

Valgerður sagði að ef þessi ákvörðun og breyting snéri að einhverju leyti að byggðamálum, væri það í raun byggðastefna Bandaríkjastjórnar sem þarna birtist. Þingmenn hlytu að vita að það væru ekki íslensk stjórnvöld sem rækju Ratsjárstofnun. Bandaríkjamenn skömmtuðu stofnuninni fjármagn og hefðu ákveðið að draga úr því.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×