Bandaríkjamenn ætluðu að loka tveimur ratsjárstöðvum 18. október 2006 18:45
Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra telur sig ekki geta komið í veg fyrir flutning starfa á vegum Ratsjárstofnunar frá landsbyggðinni á Keflavíkurflugvöll. Ráðherrann vonast þó til að allar fjórar núverandi ratsjárstöðvar verði áfram starfræktar, þrátt fyrir brottför hersins. Valgerður svaraði fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Frjálslyndaflokksins, sem lék forvitni á að vita hvað ráðherrann ætlaði að gera vegna uppsagna starfsmanna Ratsjárstofnunnar á Vestfjörðum, Norðausturlandi og Suðurlandi. Ráðherra sagði sjálfvirkni hafa aukist mikið í ratsjárstöðvum, sem reknar væru af Bandaríkjamönnum. Bandaríkjamenn hefðu ætlað sér að loka ratsjárstöðvunum á Bolafjalli og á Langanesi við brottför hersins í september. Nú ætli þjóðirnar og NATO að ræða framtíðarfyrirkomulag og fjármögnun þessara stöðva. Utanríkisráðherra sagðist vona að niðurstaða þessarra viðræðna yrði að allar ratsjárstöðvarnar fjórar verði áfram í rekstri. En niðurstaða verður að liggja fyrir í þeim efnum fyrir 15. ágúst á næsta ári. Kristinn H Gunnarsson, samflokksmaður ráðherrans, lagði áherslu á að Ratsjárstofnun væri íslensk stofnun. Hún væri á fjárlögum íslenska ríkisins og lyti valdi íslenskra ráðherra. Hann sagðist ekki telja það skynsama stefnu, sem bandarísk stjórnvöld hefðu tekið, að flytja störf frá Vestfjörður, Norðausturlandi og Suðausturlandi til Miðnesheiðar. Fyrirspyrjandinn Sigurjón Þórðarson var ekki ánægður með svör ráðherra og minnti hana á, eins og Kristinn að um væri að ræða íslenska stofnun. Það þýði ekki fyrir ráðherrann að skýla sér á bakvið Bandaríkjamenn, þetta sé einfaldlega hennar ákvörðun og ekki líti út fyrir að ráðherrann ætli að breyta einu né neinu. Valgerður sagði að ef þessi ákvörðun og breyting snéri að einhverju leyti að byggðamálum, væri það í raun byggðastefna Bandaríkjastjórnar sem þarna birtist. Þingmenn hlytu að vita að það væru ekki íslensk stjórnvöld sem rækju Ratsjárstofnun. Bandaríkjamenn skömmtuðu stofnuninni fjármagn og hefðu ákveðið að draga úr því.
Mest lesið Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Fleiri fréttir „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Sjá meira