Meira en hundrað fallnir 23. febrúar 2006 16:00 MYND/AP
Írak rambar á barmi borgarastyrjaldar eftir sprengingu á einum heilagasta stað Sjíja í gær. Meira en hundrað manns hafa farist í tugum sprengjuárása síðan í gær. Ástandið í Írak hefur verið rafmagnað eftir sprengjuárásina á al-Askari moskuna í gær, enda þóttust flestir vissir um að henni fylgdu skelfilegar afleiðingar. Martraðirnar virðast ætla að rætast, því að síðan í gær hefur bókstaflega allt logað í óeirðum. Í höfuðborginni Baghdad ríkir algjört útgöngubann og vopnaða her- og lögreglumenn má sjá á vappi um alla borg. Sjíar í hefndarhug hafa gengið berseksgang um allt land til að hefna fyrir árásina á al-Askari. Fimmtíu sundurskotin lík fundust í Baghdad í nótt og fjörutíu og sjö verksmiðjustarfsmenn voru skotnir til bana við vegtálma rétt utan við höfuðborgina. Þeir voru á leið heim úr vinnu í rútu, þegar þeim var skipað út úr bifreiðinni og þeir umsvifalaust skotnir. Þá hafa nærri þrjátíu moskur súnnía verið brenndar til grunna. Eftir að Saddam Hússein var steypt af stóli hefur óeining ríkt á milli helstu þjóðarbrotanna í Írak og mikil reiði hefur ríkt í herbúðum súnnía, sem finnst þeir engu fá ráðið um stjórn landsins. Eftir þingkosningarnar í desember, þar sem þeir fjölmenntu á kjörstaði, benti ýmislegt til að söguleg sátt væri í nánd. Atburðir síðustu daga hafa hins vegar breytt því í einu vetfangi og nú er versta martröð þeirra nær veruleika en nokkru sinni,borgarastyrjöld í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira