Risaborar mætast á morgun 3. desember 2006 19:25
Framkvæmdamenn við Kárahnjúka bíða þess nú spenntir hvort tveir risaborar hitti hvor á annan, en þeim er ætlað að mætast undir Þrælahálsi á Fljótsdalsheiði innan tuttugu klukkustunda. Takist þeim að rjúfa síðasta haftið á morgun opnast fjörutíu kílómetra löng aðrennslisgöng sem ætlað er að flytja Jöklu úr Hálslóni yfir að stöðvarhúsi í Fljótsdal. Þrír risaborar hafa í tvö og hálft ár borað neðanjarðargöng sem hafa munu það hlutverk að flytja stórfljót Austurlands tugi kílómetra. Bor eitt lagði af stað frá fjallsbrún ofan stöðvarhússins í Fljótsdal og boraði 14,7 kílómetra en verkefni hans lauk í haust. Bor tvö var settur inn á miðri leið til að bora í átt að Hálslóni og á hann 10,3 kílómetra að baki. Bor þrjú hefur séð um legginn frá Hálslóni og er búinn með 14,6 kílómetra. Á morgun er búist við að sú stund renni upp að borar tvö og þrjú mætist. Búið er stöðva bor tvö og draga hann örlítið til baka svo bor þrjú geti klárað síðasta haftið en menn áætla að það gerist um tvöleytið á morgun. Þótt leysigeislatækni sé notuð til að stýra bornum rétta leið geta menn ekki verið vissir hvort hann hitti á réttan stað fyrr en þeir sjá hann birtast. Það munu því margir bíða spenntir eftir borkrónunni á morgun því mikið er í húfi; framkvæmdir upp á tvöhundruð milljarða króna yrðu í uppnámi ef borinn hefur farið ranga leið.Borun aðrennslisganganna er síðasti stóri óvissuþátturinn í gerð Kárahnjúkavirkjunar og ef borarnir hittast á morgun virðist fátt geta komið í veg fyrir að raforkuframleiðsla hefjist þar næsta vor í þágu álvers á Reyðarfirði.
Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Erlent Starmer muni segja af sér í dag Erlent Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Erlent Fleiri fréttir Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“