Óljóst hvernig varnirnar verða 31. mars 2006 18:29
Fjölmenn bandarísk sendinefnd gat ekki útskýrt í dag hvernig vörnum Íslands verður háttað eftir að herinn fer héðan. Þó er fullyrt að staðið verði að fullu við varnarsamninginn frá árinu nítján hundruð fimmtíu og eitt. Utanríkisráðherra segir að samstarf vegna björgunarþyrlna hafi verið rætt á þessum fyrsta formlega samningafundi þjóðanna eftir að Bandaríkjamenn ákváðu að flytja herlið og búnað frá Keflavík. Tuttugu og sex manns voru í sendinefnd Bandaríkjanna, flestir þeirra borðum skrýddir. Fyrir fundinn sögðu menn ekkert heldur gengu til fundarins við hina níu manna íslensku nefnd, þannig að við fundarborðið var tvöföld röð Bandraríkjameginn. Fundarmenn héldu sig innan ráðuneytisins allan tímann og snæddu hádegisverði í ráðuneytinu. Mark A. Pekala varaaðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að eflaust hefði ný varnaráætlun mátt liggja fyrir áður en tilkynnt var að herinn færi. Hann segir að verið sé að vinna að slíkri áætlun og hún miðist við að verja Ísland fyrir þeim hættum sem steðjað gætu að landi og þjóð í dag. Geir Haarde utanríkisráðherra segir að fundurinn í dag hafi verið á almennum nótum og að Bandaríkjamenn hafi fullyrt að varnir Íslands yrðu tryggðar og hann vonast til að á næstunni liggi fyrir áætlanir sem samrýmist óskum Íslendinga. En auk varnanna er annað atriði sem skiptir Íslendinga miklu máli, en það eru björgunarþyrlurnar sem staðsettar hafa verið á Keflavíkurflugvelli. Utanríkisráðherra segir að á fundinum hafi verið rætt samstarf varðandi þyrlur, kaup, leigu eða annað, en ekki er ljóst hvernig það verður. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvenær þoturnar fara frá Íslandi, en miðað við það sem sagt hefur verið, verður það fyrir lok septembermánaðar. Geir segist á vissan hátt sáttari nú, en eftir símtal sem hann átti fyrir skömmu við Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna. Utanríkisráðherra segir Íslendinga ekki hafa þá sérfræðiþekkingu eða annað til að útbúa varnarætlun, en Íslendingar muni leggja til það sem þeir telji að skipti máli.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Sjá meira