Innlent

Halli á vöruskiptum við útlönd

Vöruskiptajöfnuður var 9,5 milljörðum lakari fyrstu tvo mánuði ársins en á sama tíma í fyrra og nam hallinn á vöruskiptum við útlönd nú 18,6 milljörðum. Fluttar voru út vörur að verðmæti tæplega 29 milljarða fyrstu tvo mánuði ársins og var langstærstur hluti þeirra sjávarafurðir sem námu 59 prósentum alls útflutnings. Á sama tímabili voru fluttar inn vörur fyrir tæplega 47,5 milljarða og var stærstur hluti þeirra hrá- og rekstrarvörur og fjárfestingavörur en innflutningur þessarra vöruflokka jókst um 25,5 prósent á milli ára. Mestur varð samdrátturinn á innflutningi á flugvélum en fyrstu tvo mánuði ársins 2005 voru fluttar inn flugvélar fyrir rúmlega fjóra milljarða en í ár fyrir aðeins 22 milljónir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×