Íbúar á Haítí kjósa forseta og þing 7. febrúar 2006 12:22 Friðargæsluliðar við kosningaeftirlit á Haítí. MYND/AP
Íbúar á Haítí kjósa sér forseta og þing í dag. Þetta eru fyrstu kosningar þar í landi síðan Jean-Bertrand Aristide, fyrrverandi forseta, var komið frá völdum í blóðugri uppreisn fyrir tveimur árum. Hátt í 10 þúsund friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna annast kosningaeftirlit. Búið er að fresta kosningum í landinu ítrekað vegna átaka í landinu. Bandaríkjamenn og Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt til kosninga þar sem hægt verði að tryggja stöðugleika í þessu fátæka landi. Bráðabirgðastjórn hefur stýrt landinu síðustu 2 árin eða allt frá því Aristide, fyrrverandi forseti var hrakinn í útlegð til Suður Afríku. Um það bil 30 sækjast eftir forsetaembættinu og mörg hundruð frambjóðendur bítast um 129 sæti á þingi. Talið er líklegt að Rene Preval, fyrrverandi bandamaður Aristides, fyrrverandi forseta, og kaupsýslumaðurinn Charles Henry Baker takist helst á um forsetaembættið. Preval er þó talinn ögn sigurstranglegri. Hann er sagður vinsæll meðal almennings en hann var forseti landsins á árunum 1996 til 2001 og einn fárra sem hafa setið út kjörtímabil sitt. Fái engin forsetaframbjóðenda hreinann meirihluta í dag verður kosið milli tveggja efstu í mars. Hátt í fjórar milljónir Haítí-búa eru á kjörskrá og margir þeirra búa langt frá næsta kjörstað. Kjósendur hafa því verið hvattir til að vakna snemma til að ná á kjörstað í tæka tíð. Kjörstaðir voru opnaðir fyrir rúmri klukkustund og verður lokað klukkan níu í kvöld. Erfiðlega hefur gengið að koma kjörgögnum til skila og hafa þau ýmist verið flutt með múlösnum eða þyrlum.
Erlent Fréttir Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira