Ríkisstjórnin vill stuðla að kjarasátt við launþega 9. júní 2006 01:45 "
Við höfum verið í sambandi við aðila vinnumarkaðarins, bæði við Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfinguna. Ég hef átt með þeim fundi og við erum í sambandi við þá þessa dagana. Við höfum lýst okkur reiðubúna í ríkisstjórninni til þess að koma að málinu og munum vinna að því næstu daga," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Spurður um hugsanlegar skattbreytingar, til dæmis frestun á fyrirhuguðum skattalækkunum um áramótin, kveðst hann ekki geta sagt neitt frekar um það á þessu stigi. Forystumenn verkalýðshreyfingarinnar eru jákvæðir í garð tilboðs Samtaka atvinnulífsins um tólf þúsund króna launahækkun á mánuði og tvö prósent að auki til þeirra sem ekki hafa fengið neitt launaskrið síðustu tólf mánuði fyrir utan 2,5 prósentin sem allir fengu um áramótin. Þannig segir Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, að í framkvæmdastjórn og miðstjórn séu menn sammála um að vera jákvæðir og reyna að leita leiða til samkomulags. „Við sjáum ekki muninn á því hvort endurskoðun fer fram núna eða í nóvember. Ef það hefur jákvæð áhrif að gera þetta núna þá erum við tilbúin til þess," segir hann og bætir við að boltinn sé hjá ríkisstjórninni. „Það er okkar gulrót." Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, segist „skotinn í" hugmynd SA um að hækka lægstu launin en vill hækka krónutöluna í til dæmis fimmtán þúsund. „Þarna eru menn að tala um krónutölu sem ég er sáttur við en ég vil gjarnan sjá hana hærri svo að hægt sé að ganga frá samkomulagi. Þarna erum við fyrst og fremst að hugsa um láglaunafólkið og ég ætla að biðja aðra að virða það." Áhyggjur eru innan verkalýðshreyfingarinnar yfir ástandinu á stjórnarheimilinu. Bent er á að ríkisstjórnin sé hálflömuð vegna átaka innan Framsóknarflokksins. Á meðan ríki óstjórn í efnahagsmálum. Stefnt er að því að endurskoðað samkomulag taki gildi 1. júlí en vangaveltur eru innan verkalýðshreyfingarinnar um það við hvern eigi að semja, Halldór Ásgrímsson eða Geir H. Haarde, og hvort leggja eigi áherslu á að ljúka samkomulagi áður en Halldór hverfur úr ráðuneytinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Sjá meira