Neyðarástand vegna flóða 3. apríl 2006 18:30
Þúsundir manna hafa orðið að yfirgefa heimili sín á flóðasvæðunum í Mið-Evrópu. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í nokkrum héruðum Tékklands eftir að ár tóku að flæða yfir bakka sína og í nágrannalöndunum er ástandið jafnframt uggvænlegt. Mikil úrkoma hefur verið í Mið-Evrópu undanfarna daga og því hefur snjór í fjöllum bráðnað með ógnarhraða og fyllt ár og fljót á svæðinu. Tékkland hefur orðið verst fyrir barðinu á flóðinu en neyðarástandi hefur verið lýst yfir í sjö héruðum í suður- og austurhluta landsins. Björgunarsveitir hafa í allan dag unnið hörðum höndum við að rýma hús í þorpum við ár sem að öllu jöfnu eru lygnar, en eru nú sem beljandi stórfljót. Alls hafa sjö manns týnt lífi í flóðunum, en auk þess er nokkurra saknað, þar á meðal sex ára gamals drengs frá bænum Kraslítse sem féll ofan í straumharða á í gærkvöld. Björgunarsveitir leituðu að honum í alla nótt en án árangurs. Tjón af völdum flóðanna í Tékklandi liggur ekki fyrir en fullvíst má telja að það hlaupi á tugum milljarða króna. Jiri Paroubek, forsætisráðherra landsins hét í dag að veita þeim sem urðu fyrir búsifjum alla þá aðstoð sem á þyrfti að halda. Íbúar annarra ríkja álfunnar hafa ekki heldur farið varhluta af ástandinu. Vatnið í Saxelfi hefur risið svo mikið að á annað þúsund manns hefur þurft að yfirgefa heimili sín við fljótið, svo sem í hinni sögufrægu borg Dresden í Þýskalandi. Í Austurríki brast stífla svo rýma varð hús í þorpi nærri höfuðborginni Vín. Neyðarástand ríkir í allmörgun sýslum Ungverjalands og hefur orðið að rýma hús þar og í Slóvakíu, Rúmeníu og Póllandi hefur vatnselgurinn valdið umtalsverðum skemmdum en engu manntjóni enn sem komið er.
Erlent Fréttir Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður Sjá meira