Cisse flýgur fugla hæst 1. júní 2006 20:30
Úrslitin í síðustu æfingaleikjum fyrir HM eru umhugsunarefni, sérstaklega er skrýtið hvað Sven Göran Eriksson var ánægður eftir leik Englendinga við Unghverja á þriðjudagskvöldi. Þeir unnu 3-1, fínt, tvö mörk úr föstum leikatriðum, Beckham með stórkostlegar aukaspyrnur, og skakki turninn Peter Crouch með það þriðja. En hvað, skemmtilegur fótbolti? Nei. Áhrifaríkur? Kannski, en erfitt að sjá að hin meinta nýja leikaðferð, með Jamie Carragher sem aftasta mann á miðjunni sé neitt umfram það sem Englendingar hafa sýnt síðustu tuttugu ár, þrjátíu ár. David Pleat, fyrrum framkvæmdastjóri Tottenham og Sheffield Wednesday var ekki hrifinn í grein í The Guardian: ,,Jamie kann að verjast en getur engan veginn sent boltann, þetta er ekki töfralausn Englendinga á miðsvæðinu.'' Það er augljóst að enska liðið er samt sem áður með bestu miðjuna, gott ef ekki á HM, Beckham, Gerrard, Cole og Lampard, allir flottir, en þá þýðir ekki að vera með algerlega bensínlausan senter þar fyrir framan. Owen er vitaskuld nýkominn úr meiðslum, en alveg hörmulega slakur, sjáum hvort hann hressist í leiknum við Jamæka á laugardaginn. Má ég þá heldur biðja um alvöru striker, leifturárás einsog Djibri Cisse sem Liverpool virðist ekki hafa þörf fyrir, hann fór út peysunni í æfingaleik sem Frakkar spiluðu í gærkvöldi við Danmörku, og augljóst afhverju maðurinn er svona hættulegur. Hann er með vængi og ef hann fær að spila með Henry í fremstu víglínu Frakkana, frekar en David Trezeguet, þá er komið nýtt Air France flugfélag í fótboltann. Því ef það er eitthvað sem við áhorfendur viljum sjá á HM, þá er það himnesk tilþrif, ekki bara í vörn, heldur sókn, og þess vegna er Michael Owen einsog löskuð tvíþekja, í samanburði við frönsku fuglana.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Kaupa Conteh frá Stjörnunni Valur - Zrinjski Mostar | Fyrsta Evrópueinvígi Valsmanna í sumar Stjarnan - Ilves | Hvernig svarar Stjarnan fyrir skellinn um helgina? „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Ítalía nær ekki að krækja í Guardiola Modric tekur slaginn áfram í Mílanó Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík „Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Arnór í leyfi frá störfum Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Barcelona kaupir Adeyemi Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Sjá meira