Mikil verðmunur á flugi 27. mars 2006 19:45
Það getur munað rúmlega 25 þúsund krónum á verði flugmiða í áætlunarflugi til Lundúna og til baka, eftir því hvaða flugfélag er valið. Gæði flugsins útskýra ekki þennan verðmun. Fjögur flugfélög fljúga nú í reglulegu áætlunarflugi til og frá landinu, okkar gömlu góðu Flugleiðir, -eða Icelandair, -eins og menn heitir fyrirtækið núorðið. Lággjaldaflugfélagið Iceland Express, Norðurlandaflugfélagið SAS. Nýjasta viðbótin í þessari flóru er síðan breska flugfélagið British Airways sem hóf áætlunarflug hingað um helgina. Að auki fljúga auðvitað alls kyns leigufélög og ferðaskrifstofur hingað, -en þessi fjögur félög keppa í áætlunarfluginu. Fréttastofa fór á stúfana í dag og gerði litla verðkönnun á helgarferðum til Kaupmannahafnar og Lundúna. Á heimasíðum flugfélaganna fjögurra er hægt að kaupa sér miða. Fréttastofa gaf sér forsendur af handahófi, athugaði verðið á miða fyrir einn fullorðinn, -ef farið utan á föstudaginn kemur og komið heim á sunnudaginn. Alltaf var beðið um lægsta mögulega verð. Niðurstaðan varð sú að til Kaupmannahafnar er ódýrast að fara með Icelandair, -kostar rúmlega 28.000, næst ódýrast með Iceland Express, kostar tæplega 41.000, en dýrast er að fljúga með SAS, -miðað við þessar forsendur, - Þá kostar miðinn fram og til baka rúmlega 44.000. Hæsta verð er þannig 56% hærra en það lægsta. Dæmið snýst hins vegar við ef við skoðum flug til Lundúna. Þá er lang ódýrast að fara með Iceland Express, kostar um 39.000 fram og til baka. Með British Airways kostar rúmlega 60.000 en 64.300 með Icelandair. Þar munar 65 prósnetum á hæsta og lægsta verði. En hverju skyldi þetta sæta, -er svona mikill munur á þjónustunni? Ekki segja þeir á vefnum Er-læn-kvallití púnktur kom. En ferðadálkar blaða á borð við New York Times og Washington Post vísa gjarnan til hans þegar meta á gæði flugfélaga. Þar fá SAS og Icelandair, 3 stjörnur hvort félag af 5 mögulegum, en British Airways gengur betur eins-og Iceland Express, bæði félög fá fjórar stjörnur af fimm.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira