Forðaði ráðherra sér úr ráðherrastólnum vegna álits Umboðsmanns? 27. mars 2006 17:45
Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum, segir fyrrverandi félagsmálaráðherra hafa forðað sér úr ráðherrastólnum til að þurfa ekki að svara fyrir ráðningu sína á ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag. Í síðustu viku skilaði Umboðsmaður Alþingis áliti sínu á ráðningu Árna Magnússonar, fyrrverandi félagsmálaráðherra, á Ragnheiði Arnljótsdóttur sem ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytisins fyrir tveimur árum en einn umsækjanda, Helga Jónsdóttir, kvartaði til umboðsmanns. Umboðsmaður er harðorður í áliti sínu og segir meðal annars að verulegir annmarkar séu á málsmeðferðinni. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokknsins, tók málið upp á Alþingi í dag þar sem hann sagði úrskurð umboðsmanns mikinn áfellisdóm. Jón Kristjánsson, núverandi félagsmálaráðherra, varð til svara þar sem forsætisráðherra var ekki viðstaddur umræðurnar. Hann benti á að umboðsmaður teldi ekki að þetta leiddi til ógildingu á skipan ráðuneytisstjóra. Hann myndi því að sjálfsögðu taka mið af ábendingum umboðsmanns, en sagði að þær kalli ekki á að önnur manneskja verði ráðin í starfið. Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokknum, kvaðst sjá tengsl á milli álits umboðsmanns á ráðningunni og þess að Árni Magnússon skyldi segja af sér sem ráðherra á dögunum. Magnús sagði að hvorki Árni né ríkisstjórnin hafi getað þolað að ráðherrann fengi á sig þennan úrskurð. Því hafi það verið sett á svið að ráðherrann þyrfti að segja af sér vegna persónulegra ástæðna og að honum hafi boðist freistandi starf innan bankageirans.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Sjá meira