Krefur Vestmannaeyjabæ um 26 milljónir vegna starfsloka 27. mars 2006 17:45 MYND/Sigurður Bogi
Fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum krefur bæinn um rúmar 26 milljónir króna vegna meintra vanefnda á ráðningarsamningi hans. Bænum hefur borist bréf þessa efnis og það verður tekið fyrir á bæjarráðsfundi síðar í dag. Ingi Sigurðssson var ráðinn bæjarstjóri í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2002. Það gerði meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna. Hins vegar slitnaði upp úr því samstarfi um ári síðar og var Inga þá sagt upp störfum þegar nýr meirihluti Vestmannaeyjalistans of Framsóknarflokksins tók við. Bærinn lét vinna lögfræðiálit vegna starfsloka Inga og þar var niðurstaðan að hann ætti rétt á launagreiðslum í sex mánuði eftir uppsögnina. Þau laun hefur hann fengið greidd. Ingi telur hins vegar að ekki hafi verið staðið við samninginn að fullu og hefur lögfræðingur hans skrifað Vestmannaeyjabæ bréf þar sem farið er fram á að Inga verði greidd laun út kjörtímabilið, eða fram í júní á þessu ári, eins og gert sé ráð fyrir í starfsamningi hans. Nemur krafan ríflega 26 milljónum króna. Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, vildi lítið tjá sig um málið að öðru leyti en því að bréfið hefði borist bæjaryfirvöldum. Hann sagði að málið yrði tekið fyrir á fundi bæjarráðs á eftir, en hann hefst klukkan sex. Ingi Sigurðsson sagði í samtali við fréttastofu að það yrði að koma í ljós hvort hann færi í mál við bæinn ef ekki yrði staðið við samninginn. Hann biði nú eftir viðbrögðum bæjaryfirvalda.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Sjá meira