Innlent

Von á tugþúsundum í miðbæinn í kvöld

Búast má við að tugþúsundir manna leggi leið sína í miðbæinn í kvöld, Þorláksmessukvöld, enda er veðrið í borginni með ágætum og útlit fyrir að svo verði áfram. Lögreglan í Reykjavík verður með töluverðan viðbúnað eins og jafnan þegar svo margir koma saman en í dag allt gengið vel fyrir sig í miðbænum og annars staðar í borginni.

Lögreglan kvartar þó yfir því að bílum sé illa lagt í Þingholtunum og Laugaveginum og jafnvel lagt á stöðum þar sem ekki má þannig að götur hafa jafnvel lokast af þeim sökum. Brýnir lögregla fyrir ökumönnum að virða lögin og nýta sér bílastæðahúsin í miðbænum enda er frítt í þau í dag og opið þar til miðnættis

Eins og á Þorláksmessu undanfarin 27 ár standa friðarsinnar fyrir friðargöngu í miðbænum. Safnast verður saman við Hlemm þaðan sem lagt verður af stað klukkan 18, eða eftir klukkutíma. Gengið verður niður Laugaveginn með kyndla og undir tónum söngfólks úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og staðnæmst á Lækjartorgi þar sem stutt dagskrá verður í boði.

Sams konar friðargöngur fara einnig fram á Ísafirði klukkan 18, þar sem gengið verður frá Ísafjarðarkirkju og niður á Silfurtorg, og á Akureyri kl. 20 þar sem gengið verður frá Samkomuhúsinu og út á Ráðhústorg.

Tónleikar með tenórunum þremur, sem haldnir hafa verið undanfarin ár á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu, falla niður að þessu sinni af óviðráðanlegum orsökum.

Að sögn Sifjar Gunnarsdóttur hjá Höfuðborgarstofu stóð til að flytja tónleikana á svið niður á Ingólfstorg þar sem hornið á Bankastræti og Ingólfstorgi er fyrir löngu orðið of lítill staður. Hins vegar hafi skipuleggjendur átt fund með Veðurstofunni á fimmtudag sem hafi varað við því að setja upp svið í kvöld vegna illviðris. Hins vegar hafi NÚ ræst úr spánni nú en þá sé of seint að fara af stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×