Skoða skipasmíðastöð í Chile 5. nóvember 2006 03:00
Fulltrúar íslenskra stjórnvalda halda í dag til Chile til þess að kanna áreiðanleika skipasmíðafyrirtækisins Asmar, sem átti lægsta tilboðið í gerð nýs varðskips. Tveir fulltrúar Landhelgisgæslunnar, verkefnisstjóri Ríkiskaupa og danskur verkfræðingur, sem verið hefur íslenskum yfirvöldum innan handar við undirbúning útboðsins, munu skoða aðstæður Asmar í Talcahuano í Chile í sex daga. Lægra tilboð Asmar af tveimur hljóðaði upp á 28 milljónir evra, liðlega 2,4 milljarða, en áætlaður kostnaður vegna kaupa á nýju varðskipi er um 30 milljónir evra, eða tæplega 2,6 milljarðar. Tilboð bárust einnig frá Simek í Noregi, Damien í Hollandi og Pinevert í Þýskalandi. Georg Lárusson, yfirmaður Landhelgisgæslunnar, segir markmiðið með ferðinni vera að kanna aðstæður og starfsaðferðir fyrirtækisins í Chile. „Við höfum ágætis upplýsingar um hin fyrirtækin sem lögðu inn tilboð en þekkjum lítið til starfsaðferða og aðstæðna hjá Asmar. Þessi ferð er því fyrst og fremst könnunarferð en að henni lokinni eru forsendur til þess að meta það hvort gengið verður að tilboði fyrirtækisins.“ Samkvæmt áætlunum verður nýtt varðskip rúmlega 90 metra langt og með 100 til 125 tonna dráttarkraft. Fjórmenningarnir koma heim laugardaginn 11. nóvember en að lokinni skoðuninni tekur ríkisstjórn Íslands afstöðu til þess hvort tilboði Asmar verður tekið.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira