Var ótvírætt í forystusveit flokksins 4. október 2006 06:45 Ólafur Þ. Harðarson Segir skiptin gefa vísbendingar um breytt landslag innan flokksins. MYND/GVA
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segist ekki muna til þess að nokkur framkvæmdastjóri í íslenskum stjórnmálaflokki hafi haft jafn afgerandi völd og áhrif innan flokksins sem hann starfar fyrir og Kjartan. „Kjartan hefur verið öflugur framkvæmdastjóri og einn af valdamestu mönnum í Sjálfstæðisflokknum um árabil. Hann var um langt skeið einn nánasti samstarfsmaður Davíðs Oddssonar og hefur haldið utan um mikilvægt starf innan flokksins. Ég man ekki til þess að nokkur framkvæmdastjóri stjórnmálaflokks hafi verið eins valdamikill og Kjartan hefur verið innan Sjálfstæðisflokksins um langt skeið,“ sagði Ólafur. Hann telur framkvæmdastjóraskiptin gefa vísbendingar um að Sjálfstæðisflokkurinn sé hugsanlega að taka breytingum. „Það er ljóst að þetta eru töluverðar breytingar fyrir forystusveit flokksins. Andri kemur úr hinum svokallaða Deigluhóp sem til þessa hefur verið talinn standa nærri Geir H. Haarde meðan Kjartan var náinn samstarfsmaður Davíðs Oddssonar. Sumir hafa talið að undir forystu Geirs geti flokkurinn færst nær miðjunni, líkt og margir hægri flokkar í Evrópu hafa verið að gera upp á síðkastið.“
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira