Samfylkingarmenn hlynntastir aðild að Evrópusambandinu 22. mars 2006 21:10
Meirihluti Framsóknarmanna og Samfylkingarmanna vilja að Íslendingar taki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Eins við greindum frá í fréttum okkar fyrr í dag þá eru tæplega fjörtíu og eitt prósent landsmanna hlynntir aðild að Evrópusambandinu. Þegar við skoðum hins vegar hvernig hlutfallið skitpist eftir því hvaða flokk fólk ætlar að kjósa kemur í ljós að Samfylkingarmenn eru hlynntastir aðild að sambandinu.Um 61 prósent þeirra eru hlynntir aðild en aðeins 23,3 prósent þeirra eru andvígir henni. Framsóknarmenn eru einnig frekar hlynntir aðild að Evrópusambandinu en tæp 44 prósent þeirra en eins er athyglivert hve margir þeirra eru óákveðnir eða tæp 27 prósent. Minnstan hljómgrunn fær aðild að Evrópusambandinu hjá Vinstri Grænum en aðeins 27,7 prósent þeirra eru hlynntir aðild. Athygli vekur að þegar skoðuð er niðurstaðan við spurningunni hvort hefja eigi viðræður um aðild að Evrópusambandinu þá hækkar hlutfall þeirra sem eru hlynntir því hjá öllum flokkum. Samfylkingarmenn eru þar þó fremstir í flokki en 72 prósent þeirra vilja hefja viðræður um aðild. Næstir þeim eru svo Framsóknarmenn en helmingur þeirra vilja hefja viðræður sem kemur heim og saman við stefnu formanns flokksins.Þegar skoðað er hverjir eru hlynntir því að taka upp Evruna sem gjaldmiðil á Íslandi í stað krónunnar kemur í ljós að niðurstaðan er í takt við niðurstöðu aðildar. Samfylkingarmenn eru því hlynntastir eða rúmlega 60 prósent þeirra vilja taka upp evruna sem gjaldmiðil.Könnunin var gerð fyrir Samtök iðnaðarins á tímabilinu 21. febrúar til 3. mars. Úrtak könnunarinnar var rúmlega 1290 manns á aldrinum 16 til 75 ára og var valið handahófskennt úr þjóðskrá. Svarhlutfall var sextíu og tvö prósent.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Árni skólameistari heldur embættinu Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Erlent Fleiri fréttir Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Árni skólameistari heldur embættinu Skipuð rektor MH fyrst kvenna Lokatölur í Mýrdalshreppi: Nýr listi með flest atkvæði Tvær sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja Halla og Björn á ferð um Suðurland í dag Eldur kom upp í vélarúmi báts Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Guðbjörg með flest atkvæði og flestir vilja sameinast Stykkishólmi Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Ein breyting í sveitarstjórn Kaldrananeshrepps Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Ríflega helmingur orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni Meirihlutasamstarf í höfn í Reykjanesbæ Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Maðurinn sem var beittur rafbyssu fluttur með sjúkraflugi til Noregs Klemmdist undir rútu Ekki talin vanhæf og fær að vera skiptastjóri „Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Hafna kröfu um lokuð réttarhöld Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Berglind Ósk sögð næsti bæjarstjóri Akureyrar Greiðvikni kom í bakið á fjórum Sjá meira