Rafgeymar splundruðust yfir all stórt svæði 22. mars 2006 15:30
Ílát sem notað er til flutnings á notuðum rafgeymum valt af bíl frá Flytjanda í gærkvöldi. Við það splundruðust rafgeymar sem voru í ílátinu yfir all stórt svæði. Óhappið varð um klukkan sjö í gærkvöldi við rætur Öxnadalsheiðar. Hreinsunarstarf gekk vel en fimmtán manns frá Brunavörnum Skagafjarðar og Björgunarsveitinni í Varmahlíð stóðu að hreinsuninni fram undir miðnætti í gær. Svo virðist sem ílátið hafi ekki verið tryggilega fest á bílnum og í fréttatilkynningu sem Eimskip, eigandi Flytjanda, sendi frá sér verðu málið yfirfarið og tryggt að úrbætur verði gerðar á slíkum festingum í framtíðinni. Fréttatilkynning Eimskips:"Óhapp í Norðurárdal í Skagafirði.Það óhapp varð í gærkvöldi, þriðjudag 21. mars, um kl. 19, að ílát sem notað er til flutnings á notuðum rafgeymum valt af bíl frá Flytjanda, vöruflutningafyrirtæki Eimskips, við vestanverðar rætur Öxnadalsheiðar, innst í Norðurárdal. Við þetta splundruðust rafgeymar sem í kerinu voru yfir allstórt svæði.Menn frá Brunavörnum Skagafjarðar voru kallaðir út ásamt björgunarsveitarmönnum úr Björgunarsveitinni í Varmahlíð, samtals um 15 manns. Þeir hreinsuðu svæðið eins og unnt var miðað við aðstæður. Fenginn var bíll með ílát frá Gámaþjónustu Ó.K. á Sauðárkróki. Fylgst verður með staðnum í samráði við fulltrúa Heilbrigðiseftrilits Skagafjarðar og svæðið hreinsað betur ef þörf krefur.Óhappið virðist mega rekja til þess að ekki var nægilega tryggilega gengið frá farminum á bílnum. Það mál verður yfirfarið af hálfu Eimskips og tryggt að bætt verði úr í framtíðinni.Eimskip vill koma á framfæri þakklæti til allra hlutaðeigandi fyrir aðstoðina. Félagið mun fylgja því eftir að enginn þeirra beri kostnað af aðstoðinni og að komið verði í veg fyrir mengun af þessu óhappi eins og kostur er.Um Eimskip Eimskip býður heildarþjónustu í flutningum. Þjónustunet Eimskips er sett saman af 54 skrifstofum félagsins í Evrópu, N-Ameríku, S-Ameríku og Asíu, um 30 skipum og 15 frystigeymslum í Evrópu, N-Ameríku og Asíu, ásamt ýmsum dótturfélögum og samstarfsaðilum.Um Avion Group Avion Group starfrækir 85 starfsstöðvar víðs vegar um heiminn og starfsmenn félagsins eru á fimmta þúsund. Félagið býður viðskiptavinum sínum traustar, hraðvirkar og hagkvæmar lausnir í flutningum, með samhentri starfsemi sem á enga sína líka."
Fréttir Innlent Mest lesið Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Innlent Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Innlent Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Innlent Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Innlent Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Erlent Hrafnagilshverfi stækkar ört Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Erlent Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Innlent Fleiri fréttir Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Sjá meira