Náttúruminjasafn Íslands eitt þriggja höfuðsafna 22. mars 2006 08:00 MYND/Stefan
Náttúruminjasafn Íslands verður eitt þriggja höfuðsafna á Íslandi ásamt Þjóðminjasafninu og Listasafni Íslands nái nýtt frumvarp menntamálaráðherra þar að lútandi fram að ganga. Í framhaldinu stendur svo til að finna Náttúrugripasafninu nýjan stað. Menntamálaráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn nýtt frumvarp til laga um Náttúruminjasafn Íslands sem ætlað er að verða höfuðsafn á sviði náttúrufræða í samræmi við ákvæði safnalaga. Saga Náttúruminjasafnsins, sem margir þekkja sem Náttúrugripasafnið og er nú staðsett við Hlemm, nær aftur til ársins 1884. Það hefur heyrt undir Náttúrufræðistofnun Íslands og þar með umhverfisráðuneytið frá því að ráðuneytið var stofnað árið 1990 en með nýju lögunum er ætlunin að skilja á milli Náttúrufræðistofnunar og safnsins og færa safnið undir menntamálaráðuneytið eins og önnur söfn. Í frumvarpinu er hlutverk Náttúruminjasafns Íslands skilgreint og gerð grein fyrir skipulagi þess og yfirstjórn. Auk þess að vera eitt þriggja höfuðsafna ásamt Þjóðminjasafninu og Listasafni Íslands er Náttúruminjasafninu einnig ætlað rannsóknarhlutverk í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands sem verður vísindalegur og faglegur bakhjarl safnsins. Enn fremur er ætlunin að koma á fót góðu safni um náttúru Íslands en Náttúrugripasafnið hefur verið í bráðabirgðahúsnæði við Hlemm í allmörg ár. Á nýjum stað vonast menn til að geta sýnt fjölmarga gripi sem nú eru í geymslu. Hins vegar er ekki búið að finna húsnæðið og segir aðstoðarmaður menntamálaráðherra að rétt hafi verið talið að leita samþykkis á hinum nýju lögum áður en Náttúruminjasafninu verði fundinn staður.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Fleiri fréttir Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða og innviðahópur ekki skipaður með formlegum hætti Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Sjá meira
Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða og innviðahópur ekki skipaður með formlegum hætti