Munur á ævilengd karla og kvenna minnkar enn 29. mars 2006 22:33 MYND/Gunnar
Munur á ævilengd karla og kvenna hér á landi minnkar enn. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Þá er Ísland með lægstu tíðni yfir ungbarnadauða í heiminum. Eins og annars staðar í heiminum er meðalævilengd karla á Íslandi styttri en kvenna. Íslenskir karlar geta nú vænst þess að verða 79 ára á meðan konur verða að meðaltali rétt tæplega 84 ára, þegar miðað er við meðaltal síðustu ára. Á undanförnum þremur áratugum hefur dregist talsvert saman með kynjunum í meðalævilengd. Í upphafi áttunda áratugarins var munurinn sex ár hér á landi en er nú tæp fjögur. Svipaða þróun má greina í öðrum Evrópulöndum en munur á ævilengd er þó víðast hvar meiri en hér. Í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar er munurinn minnstur á meðal Íslendinga. Bæði ungbarna- og burðarmálsdauði hefur verið með eindæmum lítill hér á landi á síðustu árum, og hefur nánast farið minnkandi allt frá sjötta áratuginum. Burðarmálsdauði er reiknaður sem fjöldi látinna á fyrstu viku að viðbættum andvana fæddum börnum, en hann er nú 3,6 börn af hverjum þúsund fæddum, sem er lægsta tíðni burðarmálsdauða í heiminum. Ungbarnadauði, sem skilgreindur er sem fjöldi látinna á fyrsta ári af hverjum þúsund fæddum, er sömuleiðis fátíðastur á Íslandi miðað við önnur lönd. Meðaltal undanfarinna fimm ára er 2,5 af hverjum þúsund en hvergi annars staðar er ungbarnadauði nú undir þremur af þúsund. Annars staðar á Norðurlöndunum er hann lægstur í Svíþjóð og Finnlandi, þar sem rúmlega þrjú börn af hverjum þúsund deyja á fyrsta aldursári, en hæstur í Danmörku, eða 4,4 einstaklingar af hverjum þúsund. Utan Norðurlandanna er ungbarnadauði nú minnstur í Japan þar sem þrjú börn af hverjum þúsund deyja áður en þau ná eins árs aldri.
Fréttir Innlent Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fleiri fréttir Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Sjá meira