Óttast að starfsemi Byggðastofnunar verði fyrir bí 29. mars 2006 14:00 MYND/Byggðastofnun
Þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi óttast að starfsemi Byggðastofnunar verði lögð af með nýju frumvarpi iðnaðar- og viðskiptaráðherra um sameiningu stofnunarinnar og fleiri stofnana í Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þrátt fyrir að bankarnir hafi aukið lánastarfsemi sína úti á landi séu veik svæði sem stofnun eins og Byggðastofnun verði að sinna. Valgerður Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, kynnti í fyrradag frumvarp sem gerir ráð fyrir sameiningu Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar í eina stofnun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Sauðárkróki. Markmiðið er að efla atvinnuþróun og nýsköpun á landsbyggðinni. Einar Oddur Kristjánsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sagði í fréttum í gær að sjálfstæðismenn ættu eftir að taka afstöðu til frumvarpsins og gagnrýndi það að iðnaðarráðherra hefði kynnt málið á sérstökum blaðamannafundi áður en afstaða stjórnarflokkanna lá fyrir. Og það eru fleiri sem hafa athugasemdir við málatilbúnaðinn. Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, segir kynninguna vægast sagt óvenjulega. Ráðherra hafi greinilega kynnt hugmyndirnar í atvinnulífinu eftir því sem fram komi í fréttum. Ráðherrann haldi auk þess blaðamannafund á sama tíma og verið sé að ræða málið í stjórnarflokkunum sem sé mjög óvenjulegt. Það hafi vakið hörð viðbrögð hjá samstarfsflokknum. Almennir þingmenn hafi hins vegar ekki fengið frumvarpið og viti því ekki hvað í því er fyrir utan það sem fram komi í fréttum. Anna segir að út frá þeim tillögum sem hún hafi heyrt af í fjölmiðlum finnist henni jákvætt að aðalstöðvar stórrar ríkisstofnunar verði úti á landi. Hins vegar sé mjög miður ef fulltrúi atvinnulífsins eigi ekki að sitja í stjórn hinnar nýju stofnunar. Þá hefur Anna áhyggjur af því hvernig núverandi hlutverki Byggðastofnunar verði sinnt. Hún segir að þrátt fyrir að bankarnir hafi aukið lánastarfsemi sína úti á landi séu veik svæði sem stofnun eins og Byggðastofnun verði að sinna. Aðspurð um hvort hún óttist að hlutverk Byggðastofnunar verið fyrir bí með nýjum hugmyndum segir Anna að henni þyki athyglisvert að Einar Oddur Kristjánsson, sem hafi verið ásamt Magnúsi Stefánssyni, þingmanni Framsóknarflokksins, í nefnd sem vinna átti að tillögum að endurskipulagningu Byggðastofnunar, telji þetta aðferð iðnaðar- og viðskiptaráðherra til að leggja stofnunina niður. Hún hallist að því að það sé eitthvað til í orðum Einars.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira