Vikuferð út í geim fyrir milljarð 1. október 2005 00:01
Bandarískur kaupsýslumaður, Gregory Olsen, er ásamt tveimur geimförum um borð í rússnesku Soyuz geimfari á leið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, en þeim var skotið á loft frá Kasakstan í morgun. Olsen er þriðji maðurinn sem fær að ferðast út í geim gegn greiðslu. Soyuz geimfarinu var skotið á loft frá geimferðamiðstöðinni í Baikonur í Afganistan, að viðstöddu fjölmenni. Tveir geimfarar, Rússinn Valery Tokarev, og Bandaríkjamaðurinn William McArthur, eru um borð, ásamt bandaríska kaupsýslumanninum Gregory Olsen, en hann er sagður hafa greitt sem samsvarar rúmlega einum komma tveimur milljörðum íslenskra króna fyrir ferðalagið út í geim. Allt gekk samkvæmt áætlun í morgun og er haft eftir stjórnendum ferðarinnar að þremenningunum líði vel. Áætlað er að Soyuz komi til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar eftir tvo daga, en meðal verkefna geimfaranna er að fara með birgðir til stöðvarinnar. Gregory Olsen, sem er sextugur, mun dvelja um vikutíma í geimnum, en sjálfir geimfararnir áforma að starfa í geimstöðinni næstu mánuði, og fara aðrir geimfarar því tilbaka til jarðar með Soyuz geimfarinu. Ýmsir hafa gagnrýnt harðlega ferðalög kaupsýslumanna út í geim, gegn greiðslum, en Olsen sagði fyrir geimskotið í morgun að þátttaka hans væri nauðsynlegur þáttur í þróun geimferða.
Erlent Fréttir Mest lesið Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Erlent Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Innlent Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Erlent Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Erlent Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Innlent Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Innlent Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Innlent „Hef hvergi hallað réttu máli“ Innlent Fleiri fréttir Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalar lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands Yfirvöld sögð rukka háar fjárhæðir fyrir afhendingu líka mótmælenda Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Hafi afhent Trump Friðarverðlaun Nóbels Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Veiki geimfarinn kominn aftur til jarðar Tóku enn eitt skipið Trump hótar að siga hernum á mótmælendur Kennir Selenskí enn og aftur um Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Witkoff segir annan áfanga friðaráætlunarinnar hafinn Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Hætta vinnslu umsókna innflytjenda frá 75 ríkjum Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Stuðningur við Grænland ómetanlegur og hvetur Íslendinga til að mæta Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila