Samstarfi slitið til að fá fund 15. júní 2005 00:01 "
Markmiðið var aldrei að hætta samstarfinu við menntamálaráðuneytið heldur aðeins að vekja athygli á því ástandi sem við vorum óánægð með," segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands en Kennarasambandið sendi frá sér tilkynningu í gær um það að sambandið hefði sagt sig frá öllu samstarfi við ráðuneytið vegna styttingu náms til stúdentsprófs. Eiríkur segir að hann og Elna Katrín Jónsdóttir, varaformaður Kennarasambandsins, hafi átt fund með fulltrúum menntamálaráðuneytisins 28. apríl síðastliðinn þar sem lagðar voru fram áherslur Kennarasambandsins og segir Eiríkur að í framhaldinu hafi verið búist við því að fundur fengist með ráðherra en til hans hafi ekki verið boðað og því hafi verið gripið til þess ráðs að slíta samstarfi við ráðuneytið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að skilaboð Kennarasambandsins hafi komið henni mjög á óvart. "Ég er búin að leggja mikla áherslu á að eiga gott og mikið samstarf við alla aðila vegna þessa máls. Ég hef í því skyni fundað með framhaldsskólakennurum allra skóla milliliðalaust og það hafa komið mjög margar og góðar ábendingar af þeim fundum. Ég er búin að bjóðast til að hitta fulltrúa Kennarasambandsins núna strax eftir helgi. Það hefur aldrei verið vandamál af minni hálfu og ég hef allan þann tíma sem ég hef verið í ráðuneytinu unnið þannig að ég vil hafa samráð og gott samstarf við fólk, kennaraforystuna sem aðra og tek á móti þeim með opnum hug," segir Þorgerður Katrín. Eiríkur segir að fulltrúar Kennarasambandsins muni mæta á fund sem ráðherra hefur boðað til eftir helgi. "Við munum að sjálfsögðu mæta á fund eftir helgi og ég vona að þetta verði til þess að samskiptin verði í eðlilegu fari," segir hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira