Innlent

Þróar harðkornaskósóla

Íslendingur hefur náð góðum árangri í þróun harðkornaskósóla. Á morgun heldur hann til Bandaríkjanna til að taka þátt í samkeppni um viðskiptaáætlanir. Óskar Jónsson hefur unnið að þróun harðkornasólanna í fjögur ár en hugmyndin er byggð á harðkornadekkjum sem fyrirtækið Nýiðn hefur unnið með undanfarin ár. Óskar segir að skósólarnir séu mjög öruggir. Þeir séu þeir bestu og gripmestu í heimi og þá megi nota undir allan almennan skófatnað bæði við blautar og hálar aðstæður, en mikil þörf sé á öryggissólum sem þessum. Á morgun heldur Óskar til Bandaríkjanna til að taka þátt í samkeppni um viðskiptaáætlanir en hann er kominn í fimm manna úrslit með viðskiptahugmyndina að harðkornasólunum. Til fararinnar fékk Óskar styrk frá iðnaðarráðherra. Óskar hefur unnið til tvennra verðlauna vegna harðkornasólanna. Hann hlaut Nýsköpunarverðlaunin árið 2003 og fyrstu verðlaun í Evrópusamkeppni hugmyndasmiða sama ár. Óskar hefur leitað eftir stuðningi til Nýsköpunarsjóðs sem ekki hefur getað lagt verkefninu lið vegna fjárskorts síðustu tvö ár. Aðspurður hvort hann sé bjartsýnn á að geta farið að framleiða sólana segir Óskar að það sé ekki spurning hvort heldur hvernær það gerist. Hann þurfi nú að skoða þann möguleika að leita til fjárfesta til að fjármagna verkefnið því sólarnir eigi ekki bara erindi við Íslendinga heldur fólk út um allan heim. Hann sé mjög bjartsýnn á að harðkornasólarnir nái að festa rætur í skóiðnaðinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×