Ýkjur einkenndu fréttaflutninginn 28. september 2005 00:01
Rangfærslur og ýkjur einkenndu fréttir bandarískra fjölmiðla af ástandinu í New Orleans og nágrenni eftir að fellibylurinn Katrín reið yfir í ágústlok. Ástæðan er skortur á samskiptum en einnig kynþáttafordómar. Þetta er fullyrt í grein í breska blaðinu The Independent í gær. Eftir að fellibylurinn Katrín gekk á land í sunnanverðum Bandaríkjunum og flóðgarðar brustu við New Orleans með þeim afleiðingum að borgin fór undir vatn fóru strax að berast óhugnanlegar sögur af ástandinu þar. Algert niðurbrot siðferðisgilda virtist hafa átt sér stað, stigamenn fóru um ránshendi og óttast var að tugir þúsunda hefðu látið lífið. Sérstaklega átti ástandið að vera slæmt í Superdome-íþróttahöllinni og í ráðstefnumiðstöð þar sem flóttamenn höfðust við innan um rotnandi lík, saur á gólfum og án matar og vatns. Þaðan bárust sögur af morðum og nauðgunum, jafnvel á börnum. Nú er hins vegar að koma í ljós að í Superdome-höllinni dóu einungis sex manns. Fjórir dóu af eðlilegum orsökum, einn af ofneyslu fíkniefna og einn framdi sjálfsmorð. Engar staðfestar heimildir eru fyrir morðum þar. Í ráðstefnumiðstöðinni áttu 24 að hafa verið myrtir, þar hafa aðeins fundist fjögur lík og virðist eitt dauðsfallið hafa verið af manna völdum. Fjögur morð voru framin í New Orleans þessa örlagaríku viku, rétt eins og hverja aðra viku í árinu. Frásagnir af gripdeildum og ránsferðum voru sömuleiðis ýktar, að minnsta kosti hefur ekki tekist að staðfesta nema brot af þeim. Indepenent tilgreinir ýmsar ástæður fyrir því að tröllasögurnar komust á kreik. Í fyrsta lagi voru fjarskiptakerfi í borginni í lamasessi af völdum fellibylsins og flóðanna sem fylgdu í kjölfarið og því áttu flökkusögur ef til vill greiðari leið en ella. Önnur ástæða er sérstakt fjölmiðlaumhverfi þar sem beinlínis er gert út á að vekja sem sterkastar tilfinningar áhorfenda við fréttaflutningnum. Í þriðja lagi hefur svo verið bent á að kynþáttafordómar hafi haft mikið að segja, að ótti hvítra velmegandi íbúa við hina þeldökku og fátækari nágranna sína hafi orðið skynseminni yfirsterkari.
Erlent Fréttir Mest lesið Forstjóri Deloitte ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Keyrði á móti umferð á Reykjanesbraut Innlent Forstjóri Deloitte: Sver af sér allar sakir en stígur til hliðar Innlent Sendiherraefnið biðst afsökunar Innlent Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Innlent Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Innlent Akademískir starfsmenn lýsa yfir vantrausti á rektor Innlent Borgin segir upp leigusamningi og 54 barna leikskóla að óbreyttu lokað Innlent „Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Innlent Kallar eftir upplýsingum um kínverska strætisvagna á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Veiki geimfarinn kominn aftur til jarðar Tóku enn eitt skipið Trump hótar að siga hernum á mótmælendur Kennir Selenskí enn og aftur um Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Witkoff segir annan áfanga friðaráætlunarinnar hafinn Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Hætta vinnslu umsókna innflytjenda frá 75 ríkjum Trump segir stjórnvöld í Íran hætt að drepa mótmælendur Stuðningur við Grænland ómetanlegur og hvetur Íslendinga til að mæta Vilja geta sett herlög á eyju norðan Íslands Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni 32 látnir eftir að krani féll á lest í Taílandi Rannsaka ásakanir á hendur Iglesias Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Vaktin: Stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands Tveir látnir eftir árekstur strætisvagna Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Trump segir Nielsen í vondum málum Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Trump sýndi verkamanni puttann Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur „Við veljum Danmörku“ Sjá meira