Erlent

50 þúsund manns án rafmagns

Fellibylurinn Ófelía skall á Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gærkvöldi og hefur þegar valdið töluverðum usla. Fimmtíu þúsund manns eru án rafmagns á svæðinu, mörgum skólum hefur þegar verið lokað og fjöldi fólks hefur þurft að yfirgefa heimili sín. Seint í gærkvöldi var vindhraði Ófelíu um fjörutíu metrar á sekúndu og sérfræðingar spá því að töluverð flóð kunni að fylgja í kjölfar hennar. Búið er að gefa út viðvörun í Virginíu þar sem fellibylurinn stefnir þangað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×