Óvíst um afturvirkni lagabreytinga 31. janúar 2005 00:01
Óvíst er hvort breytingar sem boðaðar hafa verið á lögum um eftirlaun ráðherra og alþingismanna verði afturvirkar. Sjö af níu fyrrverandi ráðherrum þiggja eftirlaun þótt þeir séu enn í fullu starfi hjá ríkinu og er það í samræmi við eftirlaunfrumvarp sem samþykkt var árið 2003. Ekki hefur verið upplýst hverjir það eru sem þiggja eftirlaun og hverjir ekki en ráðherrarnir eru ýmist sendiherrar eða forstjórar í daga. Þetta er þróun sem menn segjast ekki hafa séð fyrir og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur boðað að breytingar verði gerðar á lögunum enda hafi tilgangur frumvarpsins verið að gera mönnum kleift að hætta stjórnmálaafskiptum fyrr en ella og endurnýja þannig þingliðið auk þess sem stefnt var að því að gera formenn stjórnarandstöðuflokkanna jafnréttháa ráðherrum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru sammála forsætisráðherra um að það þurfi að gera breytingar á frumvarpinu til þess að koma í veg fyrir að menn geti þegið laun á tvennum vígstöðvum. Þær breytingar eru hins vegar alls ekki einfaldar, til dæmis er óvíst hvort nýtt frumvarp getur orðið afturvirkt og þeir sem nú þiggja tvöföld laun verði sviptir þessum réttindum eða hvort þeir muni fá þau áfram. Steingrímur Ólafsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, sagði í samtali við fréttastofuna að lögspekingar lægju nú yfir þessu máli til þess að finna út hvað sé hægt að gera.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Innlent Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Erlent Flugið er líflína milli byggða Grænlands Innlent Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði í bíl Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Hefja rannsóknarboranir fyrir jarðgöng til Eyja Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun „Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Flugið er líflína milli byggða Grænlands Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Faðir um brunann á Stuðlum, uppgjör í undirheimum og forsendubrestur Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Bein útsending: Ræðir glæpi gegn náttúrunni Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki „Nú hafi orðið bakslag“ Semja við Ísaksskóla um leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi Þyrlan kölluð út vegna slasaðrar konu Loka hæð vegna myglu á sjúkrahúsinu Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Skipta Kjartani og Mörtu út fyrir nýliðana tvo Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Sjá meira