Frestur landnema rennur út í kvöld 14. ágúst 2005 00:01
Frestur landnema á Gaza-ströndinni til að yfirgefa heimili sín rennur út á miðnætti. Þeir sem þráast við verða bornir út með valdi þegar líður á vikuna. Því fer fjarri að gyðingarnir níu þúsund sem búa á Gaza séu allir sáttir við að þurfa að fara en fjörutíu ár eru síðan Ísraelar hertóku Gazaströndina. Búist er við að um helmingur íbúanna fari sjálfviljugir. Samkvæmt áætlun ísraelsku ríkisstjórnarinnar eiga allar landnemabyggðirnar á Gaza, en þær eru tuttugu og ein að tölu, að vera orðnar mannlausar á miðnætti. Þegar íbúarnir sem eftir eru vöknuðu í morgun var rafmagnslaust sem auðveldar sjálfsagt ekki flutninga. Enda voru það ekki stjórnvöld sem stóðu fyrir því, heldur mótmælendur sem eru ákveðnir í að gera hvað þeir geta til að trufla brottflutninginn. Þeir sem ekki hafa yfirgefið heimili sín í kvöld eiga á hættu að missa hluta bótanna sem ríkið greiðir þeim sem flytja en þeir fá tveggja daga frest áður en herinn mætir á staðinn og flytur þá á brott með valdi. Þeir sem ekki ætla að fara sjálfviljugir segja þó ekki koma til greina að beita ofbeldi gegn her og lögreglu þegar þar að kemur, en herinn er við öllu búinn og mun senda fimmtíu og fimm þúsund hermenn til að sinna verkefninu. Í dag var mikill viðbúnaður á svæðinu því einn landnemanna lagði eld að íbúðarhúsi sínu, vöurhúsi á lóð sinni og bifreið. Hann sagðist hafa eyðilagt eigur sínar til þess að Ísraelar kæmust ekki yfir eigur hans.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira