Brottfluttir flóttamenn snúa aftur 14. ágúst 2005 00:01
Írakskir flóttamenn með dvalarleyfi í Danmörku, hafa eins árs umhugsunarfrest eftir að þeir fara heim. Ef þeir vilja snúa aftur til Danmerkur innan árs, er þeim það heimilt. Í danska dagblaðinu Politiken segir í dag að frá stríðslokum vorið 2003 hafa um tvö hundruð og fimmtíu Írakar flutt til baka til Írak. Og þótt ekkert jafnist á við föðurlandið hafa þeir þurft að kljást við afar erfiðar aðstæður þar sem bílsprengjur springa daglga, fólki er rænt og grunnþættir, svo sem vatn, matur og lágmarksheilbrigðisþjónusta er ekki alltaf til staðar. Sumir hafa verið sakaðir um að vinna fyrir bandamenn, en Danmörk studdi innrásina í Írak. Því notfæra margir sér það ákvæði að þeir megi koma aftur til Danmerkur innan árs. Því er ólíku saman að jafna, hinu rólega, örugga danska samfélagi og suðupottinum í Írak. Staðan er nú þannig að æ færri írakskir flóttamenn í Danmörku óska eftir því að fara heim. Í fyrra fór hundrað fjörutíu og einn en í ár hafa einungis tuttugu og níu haldið heim á leið. Af sex hundruð flóttamönnum sem hefur verið hafnað um dvalarleyfi hafa tuttugu og sjö farið heim. Stefna danskra stjórnvalda er þó enn að senda sem flesta Íraka heim. Tvær danskar hjálparstofnanir hafa opnað skrifstofur í borgunum Basra og Arbil til að aðstoða Íraka sem flytja þangað eftir dvöl í Danmörku. Einn flóttamannanna sem er snúinn aftur til Danmerkur segist ekki skilja þennan æsing stjórnvalda, honum finnst að enginn ætti að hætta sér til Íraks eins og ástandið er í landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Afdrif Hörpunnar enn á huldu Innlent Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Hundrað milljónum stolið af landsmönnum Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Innlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Fleiri fréttir Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Sjá meira