Flugslys í Grikklandi 14. ágúst 2005 00:01
Talið er að allir hafi farist þegar flugvél með hundrað og sextán manns innanborðs flaug á fjall um þrjátíu kílómetra norðan við Aþenu, höfuðborg Grikklands í morgun. Margt er enn á huldu um tildrög slyssins. Vélin, sem var af gerðinni Boeing 737 var farþegaflugvél frá kýpverska flugfélaginu Helios Airlines, á leið frá Larnaca á Kýpur til Prag, með millilendingu í Aþenu, með hundrað og tíu farþega og sex manna áhöfn. Flugmaðurinn hafði samband við flugturninn í Aþenu þegar vélin átti skammt eftir og var svo að skilja að hann hefði skyndilega orðið veikur eða að vandræði væru með loftkælinguna. Samband rofnaði síðan við vélina og voru þá tvær F-16 orrustuþotur sendar til að athuga hvað væri að og til að fylgja henni síðasta spölinn. Haft er eftir flugmönnum orrustuþotnanna að ekki hafi sést til flugmannsins í stjórnklefanum og aðstoðarflugstjórinn hafi verið eins og slytti í sínu sæti. Vélin flaug síðan beint á fjall á Grammatiko-svæðinu, sem er aðeins nokkra kílómetra frá alþjóða flugvellinum í Aþenu. Frændi eins farþegans fékk SMS-skilaboð skömmu áður en vélin lenti á fjallinu þar sem sagði að flugmaðurinn væri orðinn blár í framan og að það væri nístingskuldi í flugvélinni. Fjölmennt björgunarlið er komið á staðinn og af fréttamyndum má sjá að brak úr vélinni er dreift um stórt svæði og hlutar þess standa enn í ljósum logum. Ekki er talið að nokkur hafi komist lífs af. Ítalska blaðið Corriere della Sera hefur eftir flugvallaryfirvöldum í Larnaca að allir farþegarnir hafi verið Kýpverjar Þar segir einnig að áður en vélin lagði af stað hafi fundist bilun í búnaðinum sem stjórnar þrýstingi í vélinni en það átti að hafa verið lagað og flugvélin fékk því heimild til brottfarar. Lögregla segir engin merki þess að vélinni hafi verið rænt.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira