Orsök flugslyssins enn ókunn 14. ágúst 2005 00:01
Talið er fullvíst að enginn hafi lifað af þegar flugvél með hundrað tuttugu og einn mann innanborðs flaug beint á fjall skammt norðan við Aþenu, höfuðborg Grikklands í morgun. Tildrög slyssins eru ókunn. Vélin, sem var af gerðinni Boeing 737 var farþegaflugvél frá kýpverska flugfélaginu Helios Airlines, á leið frá Larnaka á Kýpur til Prag, með millilendingu í Aþenu. Farþegarnir voru hundrað og fimmtán, auk sex manna áhafnar. Flugmaðurinn hafði samband við flugturninn í Aþenu þegar vélin átti skammt eftir og var svo að skilja að hann hefði skyndilega orðið veikur eða bilun í loftloftkælingarbúnaði. Fjarskiptasamband rofnaði við vélina og voru þá tvær F-16 orrustuþotur sendar til að athuga hvað væri að og til að fylgja henni síðasta spölinn. Flugmenn orrustuþotnanna segja að ekki hafi sést til flugmannsins í stjórnklefanum og aðstoðarflugstjórinn hafi setið hreyfingarlaus í sætinu. Vélin flaug síðan á fjall á í Evboa fjallgarðinum, aðeins nokkra kílómetra frá alþjóða flugvellinum í Aþenu. Frændi eins farþegans fékk SMS-skilaboð skömmu áður en vélin lenti á fjallinu þar sem sagði að flugmaðurinn væri orðinn blár í framan og að það væri nístingskuldi í flugvélinni. Fjölmennt björgunarlið var þegar sent á staðinn en brak úr vélinni dreifðist um stórt svæði. Enginn hefur fundist á lífi. Ítalska blaðið Corriere della Sera hefur eftir flugvallaryfirvöldum í Larnaka að allir farþegarnir hafi verið Kýpverjar en það hefur ekki fengist staðfest. Ættingjar og vinir hafa safnast saman við flugvöllinn í Larnaca og bíða þess að fá einhverjar upplýsingar um afdrif ástvina sinna. Áður en vélin lagði af stað fannst bilun í búnaðinum sem stjórnar þrýstingi í vélinni sem og í samskiptakerfinu en það átti að hafa verið lagað og flugvélin fékk því heimild til brottfarar. Í fyrstu var jafnvel talið að vélinni hefði verið rænt, en gríska lögreglan aftekur það og segir engin merki um slíkt. Líklegra sé að loftþrýstingur hafi skyndilega fallið vegna téðrar bilunar og orðið til þess að flugmennirnir misstu meðvitund. Þetta er versta flugslys í sögu Grikklands. Búið er að finna svörtu kassana tvo úr vélinni og er vonast til að þeir geti skýrt atburðarásina sem á þessu stigi virðist dularfull.
Erlent Fréttir Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Sjá meira