Síminn og Skjár 1 sameinast 20. desember 2005 20:39 Mynd/Vilhelm
Hluthafafundur Landssíma Íslands hf. (Símans) samþykkti í dag sameiningu Símans, Skipta ehf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf., sem á og rekur Skjá 1. Í fréttatilkynningu frá Símanum segir að á fundinum hafi verið samþykkt samrunaáætlun sem lögð var fyrir hluthafafund í öllum félögunum fyrr í þessum mánuði. Samruni Símans, Skipta og Íslenska sjónvarpsfélagsins undir nafni og kennitölu Símans gildir frá 30. júní sl. og gilda samþykktir Símans fyrir sameinað félag. Á fundinum var samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til að auka hlutafé um allt að 3.500.000.000 kr. að nafnverði með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar falla frá forkaupsrétti að hlutunum. Gildir heimildin í 18 mánuði frá samþykkt hennar en stjórn félagsins annast nánari útfærslu á hlutafjáraukningunni. Á fundinum voru einnig samþykktar breytingar á samþykktum Símans þess efnis að nafn félagsins verði Síminn hf. og hjáheiti verði Iceland Telecom. Einnig var samþykkt að rýmka tilgang félagsins þannig að hann taki ekki eingöngu til þjónustu á sviði fjarskipta- og upplýsingatækni. Skiptihlutföll við samruna Markmið samruna Skipta og Símans er að einfalda stjórnskipulag félaganna en Skipti er eignarhaldsfélag þeirra aðila sem keyptu hlut ríkisins í Símanum. Skjárinn verður áfram rekinn sem sjálfstæð afkomueining innan Símans líkt og aðrar einingar félagsins í samkeppnisrekstri. Skerpt verður á rekstri Símans með skipulagsbreytingum. Samkomulag varð á milli stjórna félaganna um mat á skiptihlutföllum við samrunann. Matið byggist á fyrirliggjandi efnahagsreikningum félaganna að teknu tilliti til matsbreytinga á ýmsum efnahagsliðum og ætlaðs hagræðis af samrunanum. Hluthafar Skipta og Íslenska sjónvarpsfélagsins fá hluti í Símanum í stað hluta sinna. Viðbótarhlutafé vegna hlutafjárhækkunar Vegna hlutafjárhækkunar í tengslum við samrunann munu aðrir hluthafar í Símanum en Skipti fá viðbótarhlutafé í sameinuðu félagi. Skipti keyptu 98,88% hlut í Símanum í sumar á 66,7 milljarða króna eða 9,6 krónur á hlut. Aðrir hluthafar en Skipti áttu 1,12% hlut í félaginu fyrir sameiningu. Eftir sameininguna og hlutafjárhækkun tengda henni eiga hluthafar í Skiptum 96,99% hlutafjár í Símanum. Aðrir sem áttu hluti í Símanum fyrir sameiningu eiga 2,45% hlutafjár í félaginu. Hluthafar í Íslenska sjónvarpsfélaginu, aðrir en Síminn, eiga nú 0,56% hlutafjár í sameinuðu félagi.
Fréttir Innlent Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Innlent „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent Flugvöllur er ekki bara upp á punt Innlent Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Innlent Fleiri fréttir Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Grunaður um ítrekuð brot gegn fósturbarni „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Íris Helga neitar sök Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Intuens lagði landlækni „Mikilvægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“ Gæsluvarðhald framlengt í Dettifoss-málinu Lausatök gagnrýnd í Grindavíkurskýrslu og bankarnir spá vaxtahækkun Ákvarðanir um aðgengi að Grindavík lausar í reipunum Aðstoðuðu tvö skip í vanda á Breiðafirði Gjöld fyrir frístund rokið upp Sjá meira