Innlent

Vonar að það takist að manna leikskólana

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist vonast til þess að það takist að manna leikskólana í Kópavogi þótt nokkrir starfsmenn hafi lýst því yfir að þeir muni hætta störfum. Hann segir þó viðbúið að einhverjir hætti vegna yfirboða Reykjavíkurborgar. Formaður foreldrafélags leikskólans Dals segir ófremdarástand að skapast og fólk horfi fram á að þurfa að hætta að vinna til að geta verið með börnum sínum vegna manneklu á leikskólum bæjarins.

Leikskólaráðið í Kópavogi er á fundi þessa stundina til að ræða ófremdarástand á leikskólum bæjarins. Leikskólinn Dalur í Kópavogi hefur tilkynnt að vegna manneklu verði að loka skólanum að hluta til. Fjórar deildir eru á skólanum og verður ein þeirra lokuð á hverjum degi þar til tekst að ráða bug á vandanum. Nokkurir aðrir leikskólar í Kópavogi hafa líka lent í vandræðum, þar má nefna leikskólann á Rjúpnahæð.

Kópavogsbær er að skila af sér fjárhagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir metafkomu. Formaður foreldrafélagsins á Leikskólanum Dal segir útlitið mjög svart. Foreldrar bíði þó átekta eftir niðurstöðu fundar leikskólaráðs í Kópavogi í kvöld.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×