Staðgreiðsluprósentan lækkar um áramótin 19. desember 2005 20:20 MYND/Hari
Staðgreiðsluprósentan lækkar um 1,01% nú um áramótin. Samtímis fellur niður bæði hátekjuskattur og eignaskattur en brottfall eignaskatts markar söguleg tímamót því hann hefur verið við lýði hérlendis frá því á 11. öld. Þegar landsmenn fá afhenta launaseðlana fyrir janúarmánuð þá verður meira eftir í launaumslaginu til útborgunar. Minna verður dregið frá í skatta en áður. Skattbreytingar í landinu nú um áramótin verða óvenju viðamiklar að þessu sinni en sú breyting sem flestir finna sennilega mest fyrir stafar af ákvörðun Alþingis um að lækka tekjuskatt ríkisins um 1%, úr 24,75% niður í 23,75%. Tilkynning um meðalútsvar til innheimtu verður væntanlega birt á morgun en búist er við að það lækki örlítið, eða um 0,01% - úr 12,98% niður í 12,97% - vegna ákvörðunar Seltjarnarnesbæjar um að lækka útsvar. Þetta þýðir að staðgreiðsluprósentan lækkar úr 37,73% niður í 36,72%, eða um 1,01%. Persónuafsláttur hækkar um leið um 2,5% úr 28.321 upp í 29.029 krónur. Og það verða fleiri skattbreytingar. Það er stundum haft á orði að skattar sem einu sinni eru settir á hverfi aldrei. Það er aldeilis að afsannast núna því nú er að hverfa skattur sem upphaflega var settur á landsmenn fyrir meira en 900 árum síðan, og hét þá tíund. Eignaskatturinn er að hverfa. Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri segir þetta gamlan skatt og sumir vilji rekja hann allt aftur til ársins 1096 1097, þ.e. þegar tíundin var lögtekin í tíð Gissurar Ísleifssonar biskups og Sæmundar fróða. Þetta sé því orðinn býsna gamall gripur. Eignaskatturinn var lengi 1,2% af eignum yfir ákveðnu lágmarki en í fyrra 0,6% af eignarskattsstofni yfir fimm milljónum króna. Fjölmennasti hópurinn sem hagnast á brottfalli skattsins eru eldri borgarar, fólk sem á stórar og skuldlausar fasteignir. Þótt skatturinn hverfi verða eignir þó áfram framtalsskyldar. Þá er annar skattur að hverfa, hátekjuskatturinn, sérstakur viðbótartekjuskattur sem lagðist á tekjur hjóna með yfir 8,4 milljónir í árstekjur og einstaklinga með yfir 4,2 milljónir króna í árstekjur. Ríkisskattstjóri segir hann verða lagðan á í síðasta skipti á næsta ári vegna tekna á þessu ári. „Þannig að það í sjálfu sér greiðist enginn hátekjuskattur af þeim tekjum sem menn afla eftir 1. janúar næstkomandi," segir Indriði. Hækkun persónuafsláttar um 2,5% nú um áramótin þýðir að hann fylgir hvorki launa- né verðlagsþróun. Persónuafslátturinn rýrnar því að raungildi en í því felst skattahækkun.
Fréttir Innlent Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Vara við snörpum hviðum Veður Fleiri fréttir Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Umferðarslys við Víðidal Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Sjá meira