Óvenju margar ófrískar konur á flóðasvæðunum 18. desember 2005 12:00 Ramlah leikur hér við ungan son sinn Zamzami meðan börn hennar Zaleka og Nur Azizah fylgjast með. MYND/AP
Óvenjumargar konur eiga von á barni í Ache-héraði í Indónesíu þar sem tugþúsundir barna fórust í flóðbylgjunni miklu á síðasta ári. Fæðingalæknar og ljósmæður segja að þau þurfi enga tölfræði til þess að vita að miklu fleiri konur eigi von á barni, en venjulegt sé. Þau telja að þetta sé eðlilegt náttúrulögmál. Margir þeirra sem lifðu af misstu alla sína fjölskyldu í flóðbylgjunni; börn, foreldra, systkini og maka. Það er talið eðlilegt að fólk vilji tryggja sér á nýjan leik það öryggi og hlýju sem felist í fjölskylduböndum. Á þriðja hundrað þúsund manna fórust í flóðbylgjunni 26. desember, á síðasta ári, og talið er að að meira en þriðjungur þeirra hafi verið börn. "Við misstum svo marga í flóðbylgjunni," nú fáum við fleiri, segir Nurba-íti, nýbökuð móðir lítillar telpu. Önnur kona er Asmika, sem er tuttugu og þriggja ára gömul. Hún missti foreldra sína og þrjú systkini, í flóðunum. Hún var einmana og hrædd, og í febrúar síðastliðnum giftist hún manni sem hún þekkti aðeins lítillega, í fjöldabrúðkaupi. Asmika á nú von á barni. "Ég er sorgmædd yfir að hafa misst foreldra mína og systkini, segir hún. En ég er líka glöð yfir að ég á von á barni. Þá mun ég eiga vin."
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira