Atkvæðagreiðslan hafin 12. desember 2005 11:30 mynd/ap
Atkvæðagreiðsla í sögulegum þingkosningum í Írak hefst í dag. Stjórnvöld í Írak hafa gripið til víðtækra öryggisaðgerða í aðdraganda kosninganna, þar sem óttast er að uppreisnarmenn geri fjölmargar árásir. Hermenn, lögreglumenn, sjúklingar á spítölum og fangar sem bíða dóms geta kosið í dag. Á morgun verða svo greidd atkvæði utan kjörstaða í öðrum löndum en Írak, en aðalkosningadagurinn er á fimmtudaginn. Íröksk stjórnvöld ætla að loka öllum landamærum og setja útgöngubann á ákveðnum stöðum í landinu frá og með morgundeginum. Þá verður einnig sett ferðabann á ákveðnum svæðum. Gripið er til þessara aðgerða til að auka öryggi í aðdraganda kosninganna, enda óttast stjórnvöld mjög að uppreisnarmenn geri hrinu árása á næstu dögunum. Uppreisnarmenn á vegum al-Kæda hafa ítrekað hótað mörgum frambjóðendum lífláti undanfarna daga. Stjórnvöld í Írak gera sér þó vonir um að kosningarnar heppnist vel. Flest bendir til að þátttaka meðal Súnníta verði mun betri nú en í kosningunum í janúar, þegar þeir sniðgengu kosningarnar. Stjórnmálaskýrendur eru á einu máli um að góð þátttaka súnníta sé lykilatriði. Með því myndu þeir ná sínum mönnum inn á þing og þar með myndi hugsanlega skapast meiri eining um stjórnvöld í Írak. Og íbúar í Írak eru bjartsýnir miðað við nýjustu skoðanakannanir. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir BBC eru meira en sjötíu prósent Íraka ánægðir með líf sitt og tveir þriðju aðspurðra telja að líf þeirra eigi eftir að batna næsta árið. Þá segjast sjötíu prósent aðspurðra sannfærðir um að ástandið í landinu fari batnandi og verði betra eftir ár en það er nú.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira