Hryðjuverkamenn hafi verið fluttir frá leynifangelsum 6. desember 2005 13:37 Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ræddu saman í dag, m.a. um fangaflug CIA. MYND/AP
Ellefu hryðjuverkamenn úr samtökum al-Qaidavoru fluttir í snarhasti úr leynifangelsum í Austur-Evrópu þegar fréttir af fangelsunum birtust í fjölmiðlum. Þetta hefur fréttastöðin ABC eftir núverandi og fyrrverandi starfsmönnum leyniþjónustunnar, sem fullyrða að fangelsin hafi enn verið starfrækt fyrir mánuði síðan. Heimldarmenn ABC segja að bandaríkjastjórn hafi ekki lokað leynifangelsum sínum í Póllandi og R úmeníu fyrr en Washington Post greindi frá þeim fyrir rúmum mánuði. Þeir segja að bandarísk stjórnvöld hafi lagst á eitt um að koma öllum föngum burt úr fangelsunum strax eftir að fréttin birtist. Ellefu hryðjuverkamenn úr röðum al-Qaida hafi kerfisbundið verið yfirheyrðir í leynifangelsunum, en þeir hafi nú verið fluttir í fangabúðir sem CIA starfræki í eyðimörk í norður-Afríku. Þá segja heimildarmenn ABC jafnframt að allir mennirnir nema einn hafi verið beittir hörðustu aðferðum sem CIA notist við. Fjórtán starfsmenn leyniþjónustunnar hafa fengið leyfi til að beita þessum aðferðum, sem eru mun harðari en þær aðferðir sem almennt eru samþykktar. Í yfirlýsingu frá mannréttindasamtökunum Amnesty International frá í gær kemur fram að sex flugvélar á vegum CIA hafa lent um átta hundruð sinnum á evrópskum flugvöllum undanfarin ár. Þar af hafi vélarnar lent fimmtíu sinnum í Írlandi, en fyrir aðeins nokkrir dagar eru síðan Condoleeza Rice fullyrti að engar vélar á vegum leyniþjónustunnar hefðu lent þar. Rice viðurkenndi í gær að Bandaríkjamenn hefðu stundað fangaflug í áraraðir, en sagði það með öllu löglegt. Ekki væri verið að flytja fanga sem til stæði að pynta á leynilegum stöðum. Rice er nú í opinberri heimsókn í Þýskalandi, þar sem hún fundar með Angelu Merkel kanslara og Frank Walter Steinmeyer utanríkisráðherra. Síðar í dag fer Rice svo til Rúmeníu, þar sem leynifangelsin verða væntanlega ofarlega á baugi, þó að það sé henni þvert um geð.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira