Stjórnvöld þögul um framtíð hátækniiðnaðarins 1. desember 2005 22:00
Stjórnvöld þegja þunnu hljóði um hugsanlegar aðgerðir til að gera starfsumhverfi hátæknifyrirtækja hér á landi bærilegra. Á meðan er tugum starfsmanna sagt upp og mörg fyrirtækjanna hyggjast flytja starfsemi sína úr landi. Forsvarsmenn íslenskra hátæknifyrirtækja segjast búa við afar slæmt vinnuumhverfi hér á landi. Nærri helmingi starfsmanna eins þessara fyrirtækja, Hjartaverndar, var sagt upp í gær. Fyrirtækið hefur undanfarin ár unnið að öldrunarrannsókn sem bandarísk heilbrigðisyfirvöld kosta. Forstöðumaður Hjartaverndar, Vilmundur Guðnason, sagði í samtali við fréttastofu NFS í gær að vegna óhagstæðrar gengisþróunar hér á landi hafi kostnaðurinn við rannsóknina aukist umfram það fjármagn sem upphaflega var gert ráð fyrir að myndi duga, og því var gripið til uppsagnanna. Og Vilmundur sagði að stjórnvöld yrðu að grípa til einhverra aðgerða ef mögulegt ætti að vera að halda áfram starfsemi hátæknifyrirtækja hér á landi. Samtök iðnaðarins, sem funduðu með stjórnvöldum á dögunum, hafa einnig kallað eftir aðgerðum, sem og forsvarsmenn Samtaka íslenskra sprotafyrirtækja. Eitt fyrirtæki, Flaga, hefur þegar flutt starfsemi sína úr landi og mörg önnur innan hátæknigeirans íhuga slíkt hið sama. Ekkert hefur heyrst frá stjórnvöldum hvað þau hyggist gera í málinu. Iðnaðarráðherra neitaði að tjá sig um málið við fréttastofuna í dag þegar eftir því var leitað.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi Innlent Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira