Ritstjóri Læknablaðsins rekinn 28. nóvember 2005 23:20 Eigendur Læknablaðsins hafa ákveðið að skipa nýja ritnefnd og þar er ekkert pláss fyrir ritstjóra blaðsins til tólf ára.
Vilhjálmur Rafnsson hefur verið leystur frá störfum sem ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins. Stjórnir Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur hafa ákveðið að skipa nýja ritnefnd fyrir blaðið og að Vilhjálmur verði ekki hluti af henni. Deilur hafa staðið um störf Vilhjálms síðan harðorð grein Jóhanns Tómassonar læknis um Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og störf hans á Landspítala háskólasjúkrahúsi birtist. Fjórir af fimm ritnefndarmönnum sögðu af sér og Kári Stefánsson krafðist þess að Vilhjálmur yrði rekinn. Nú hafa stjórnir Læknafélags Íslands og Læknafélags Reykjavíkur sem eiga blaðið, ákveðið að skipa nýja ritnefnd og þar er Vilhjálmur í fyrsta sinn í átján ár ekki meðal ritnefndarmanna. Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags Íslands, segir að Vilhjálmur hafi ekki verið rekinn. Það hafi einfaldlega verið tekin ákvörðun um að skipa nýja ritnefnd þar sem öll ritnefndin nema Vilhjálmur hafi sagt af sér og að Vilhjálmur hafi ekki verið hluti af þeirri lausn sem menn sáu við þeirri stöðu sem komin var upp. Vilhjálmur segist ekki getað litið öðru vísi á þetta en sem brottrekstur og það hafi framkvæmdastjóri Læknafélags Íslands í raun staðfest við sig í tölvubréfaskrifum. Þá hafi sér verið sagt að búið sé að bjóða Jóhanni Björnssyni lækni stöðu ábyrgðarmanns en hann er einn ritnefndarmanna sem sögðu sig úr nefndinni vegna greinarinnar um Kára.
Fréttir Innlent Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira