Slagnum slegið á frest 27. september 2005 00:01
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, vann áfangasigur í baráttunni um leiðtogaembætti Likud-bandalagsins í fyrrakvöld þegar tillaga um að flýta forkosningunum um embættið var felld. Benjamin Netanyahu, keppinautur Sharons, kallaði hann einræðisherra að kosningunum loknum. Hitnað hefur undir Ariel Sharon undanfarin misseri, ekki síst eftir að hann lét rýma landnemabyggðir á Gaza-svæðinu. Í fyrrakvöld fór fram atkvæðagreiðsla í miðstjórn flokksins um tillögu hvort flýta bæri forkosningum vegna leiðtogakjörs en Benjamin Netanyahu, fyrrverandi forsætisráðherra skoraði Sharon á hólm fyrir nokkrum vikum. 91 prósent miðstjórnarfulltrúa greiddi atkvæði og var tillagan felld naumlega með 1.433 atkvæðum gegn 1.329. Hefði kosningunum verið flýtt er talið öruggt að Netanyahu hefði gersigrað Sharon í þeim. Í staðinn fara kosningarnar ekki fram fyrr en í apríl. Netanyahu var æfur að loknum kosningunum og kallaði Sharon "einræðisherra". Hann gaf í skyn að Sharon hefði þrýst mjög á miðstjórnarfulltrúa og lofað þeim vænum embættum að launum fyrir stuðninginn. Sharon hefur síðustu daga hitt stuðningsmenn sína úr ríkisstjórninni en hunsað þá sem snerust gegn honum og er búist við að uppstokkun sé í aðsigi. Dagblaðið Haaretz telur að þótt úrslitin hafi verið Sharon að skapi setji þau hann í vanda því staða hans í flokknum verður næstu mánuðina áfram óljós. Því fyrr sem formannskjörið fer fram þeim mun fyrr getur hann ákveðið hvort hann haldi áfram að starfa innan Likud-bandalagsins eða stofni klofningshreyfingu eins og margir hafa spáð. Netanyahu hnykkti einmitt á því að Sharon hefði enn ekki sagt af eða á um hvort hann héldi áfram í flokknum. Miðstjórnarmenn reyndu árangurslaust að komast í símasamband við Sharon að atkvæðagreiðslu lokinni en bilun kom upp í símbúnaðinum, rétt eins og í hljóðnema hans á sunnudaginn. Margir telja að Sharon hafi uppskorið samúð fyrir vikið og rannsakar nú lögregla tildrög þess að hljóðneminn bilaði.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira