Ráða Austur-Þjóðverjar úrslitum? 17. september 2005 00:01
Munurinn á fylkingum í Þýskalandi lítill og óljóst hvað ræður úrslitum. Austur-Þjóðverjar gætu reynst þungir á metunum. Nokkrum mánuðum fyrir fall Berlínarmúrsins fyrir rúmum fimmtán árum voru það friðsamleg mótmæli við Nikolaj-kirkjuna í Leipzig sem vöktu athygli umheimsins. Mótmælin breiddust út og enduðu með því að borgarbúar hertóku höfuðstöðvar Stasi í borginni. Skömmu síðar féll múrinn. Einn leiðtoganna í þessari friðsamlegu byltingu var presturinn í Nikolaj-kirkjunni, Christian Führer. Hann er enn þá prestur þar og þekktur sem hálfgerð rödd og samviska austurhluta Þýsklands. Hann er á því að enn sé langt í að hægt verði að tala um eitt Þýskaland. Innri eining hafi ekki náðst fram og munurinn á gömlu landshlutunum hafi verið verulegur. Führer er þeirrar skoðunar að Austur-Þýskaland hafi í raun verið innlimað í Vestur-Þýskaland en að löndin hefðu ekki verið sameinuð eins eðlilegt hefði verið. Hann segir fólk í austurhluta Þýskaland skorta alla sjálfsímynd. Aðspurður hvað nýr kanslari eða Schröder, sitji hann áfram, þurfi að vita og gera til að breyta þessu segir Führer að hann þurfi að vita að þetta sé eitt land. Austur og vestur sé ekki lengur til og múrinn sé sem betur fer farinn. Landamærin séu vaxin saman og á landamærasvæðunum vaxi blóm. Þau sjáist ekki lengur og það þurfi að endurspeglast í stjórnmálunum. Það megi ekki lengur gera upp á milli austurs og vestur og það þurfi að vera sömu laun og skilyrði í öllu landinu. Eins og lengi og því sé ekki komið á verði hin ósýnilegu landamæri áfram til, múrinn verði áfram til. Aðspurður hvað þurfi til að múrinn falli líka segir Führer það vandamál eldra fólksins, þeirra sem séu eldri en 35 ára. Hann finni að þetta skipti yngra fólkið engu máli lengur. Þegar hann fjalli um æskulýðshreyfingu Austur-Þýskalands skilji nemendur hann ekki og þá verði hann þess var að þetta sé löngu liðið og hversu eðlilegt ástandið sé orðið. Spurður hvort Þýskaland sé eins og hann hafi vonað við fall múrsins segir Führer að hann hafi ekki gert sér neinar grillur. Hann sé mjög feginn því að þær ómannúðlegu aðstæður sem ríkt hafi í Austur-Þýskalandi séu nú horfnar og að fólk geti aftur umgengist hvert annað. Ekki eigi að gleyma kostunum, einkum ef fólk hafi búið í Austur-Þýskalandi, málfrelsi og lýðræðislegar kosningar. Í Austur-Þýskalandi hafi bara verið einn flokkur og nú geti fólk keypt fallegar bækur og tónlist og hugsað og gert það sem það vill. Það séu mikil verðmæti fólgin í lýðræðinu og stjórnarskránni. Halda megi guðsþjónustu á torgum nú en það hafi ekki mátt fyrir fall múrsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Sjá meira