Erlent

Einkavæðing og lægri skattar

Íhaldsmenn í stjórnarandstöðu í Póllandi hafa lýst því yfir að þeir muni fremur leitast eftir samsteypuríkisstjórn, jafnvel þótt þeir næðu hreinum meirihluta í þingkosningunum 25. september næstkomandi. Ný skoðanakönnun bendir til að Íhaldsflokkurinn muni vinna kosningarnar á afgerandi hátt með stuðningi ríflega fjörutíu af hundraði kjósenda. "Það væri betra fyrir framtíðarríkisstjórn landsins að hafa breiðan stuðning innan þingsins," segir Donald Tusk, leiðtogi íhaldsmanna. Samkvæmt sömu könnun eru líkur til þess að Flokkur laga og réttlætis, sem einnig er íhaldssamur verði í öðru sæti með um 24 prósent atkvæða. Þessir tveir flokkar þykja líklegir til samstarfs um ríkisstjórn en þar með mun valdatíð Vinstri-demókrata heyra sögunni til. Fylgi Vinstri-demókrata hefur hrunið að undanförnu og mælist nú aðeins um átta prósent. Tusk leggur áherslu á minni ríkisafskipti, öra einkavæðingu og lægri skatta á fyrirtæki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×